July 18, 2007

Tileygða er ekkert grín

Ég lifi með skömm. Kann samt ekki að skammast mín. Ég hef gert mitt besta til þess að fela þessa skömm mína en oft á dag kemur það fyrir að ég gleymi mér í hita leiksins og við hverjum sem vill sjá blasir við... tileygða mín.

Á hverjum morgni undirbý ég mig fyrir daginn með því að stunda æfingar til þess að koma auganu á réttan stað. Þær súrefnisfirrtu æfingar næga yfirleitt til þess að halda því í skefjum fram að hádegi. En eins og flestir vita þá er mataræði mikilvægur partur í því að halda tileygðu í skefju. Próteinríkur matur og mikil vatnsdrykkja hefur talsverð áhrif á það hvort að augað haldist innan ásættanlegra marka tileyðu, þá erum við að tala um 3-7% skekkju sem erfitt er fyrir aðra manneskju að meta hvort um tileygðu sé að ræða eða ekki. Ég tel óþarfa að ég minnist á hversu mikilvægt andlegt jafnvægi er til þess að halda sjúkdómnum í skefjum.

Margir minni menn en ég hafa fallið í þá gryfju að gefast upp og látið sjúkdóminn algjörlega ráða lífi sínu. Þeir sjá kannski hversu hinir rangeygðu þessa þjóðfélags hafa fengið á sig "kynþokkafulla"-stimpilinn og eru litnir frekar jákvæðum augum af hinum almenna borgara. Af hverju ein "eygða" er tekin fram yfir aðra skal ég ekki dæma um, það veltur náttúrulega af tískustraumum og ríkjandi fordómum í þjóðfélaginu. En sem betur fer fyrir okkur sem þjáumst af þessum hræðilega sjúkdómi þá hefur ákveðin vakning átt sér stað og í dag má sjá fleiri og fleiri koma út úr skápnum og flagga stoltir tileygði sinni. Frægir einstaklingar eins og Paris Hilton, Jónsi og margir fleiri eru í farabroddi fyrir því að fá tileyðu viðurkennda sem ásættanlegan útlitsgalla.

Til þess að breiða boðskapinn út og koma öðrum sem enn fela sig í skömm þá hef ég eytt síðustu vikum í það að setja saman flokk af sjálfshjálparbókum. Ef mér tekst ekki að finna útgefanda þá mun ég gefa þetta út sjálfur þar sem ég hef fundið fyrir mikilli eftirsókn í þessar bækur. Það virðist sem æ fleiri séu að horfa í eigin augu og sjá votta fyrir tileygðu. Til hamingju félagar! Velkomnir um borð! Ef þig vantar hjálp og vilt kannski renna í gegnum eina af sjálfshálparbókunum sendu mér þá endilega póst og ég kem með hana persónulega heim til þín. Þær bækur sem eru tilbúnar eru: "Hvar er Valli tileygði?"(Markhópur 4-11 ára), "Tileyðga er ekki kynsjúkdómur" , "Jesús var tileygður! - Úrdrættir úr biblíunni." og "1001 andlit - förðun með tileygðu"

Koooooooooooma svoooooooooo!!!
Hér er mynd af mér og bachelhorinu:

July 3, 2007

Handa geimverunni tjess... crouchigol!!!!



Sorrí með tónlistina...
Hættu svo að væla.

June 19, 2007

Drukkna í vinnu

Ég reyni mitt besta að henda einhverju hérna inn. Er samt að drukkna í vinnu. Bara mánuður eftir. Svo er það skSpánn og skÍtalía og skFrakkland og skDanmörk og skSvíþjóð. Sný væntanlega heim sólbúnn og sællegur með óvæntan gleðigjafa í formi kynsjúkdóms til baka.

Hver veit nema von sé á sumarskúbbi með uppáhalds skarðsstjóra okkar allra. Sem minnir mig á að ég er byrjaður að semja Lofsöng kópaskarðsbúa: "Sól skín skært í skarði kársnesbrautar"

"Kópaskarð! Kópaskarð! Kópaskarð!
Íslands kærasta þúfubarð.
Players, Papco, hamraborg!
Pústkó... hvílík sorg!"

Fyrsta erindi og þarfnast smá vinnslu.

June 11, 2007

Keyptu bol maður!

Búðin ekkert að ganga? Ég er að meina mína búð... ekki búðina mína. Hún gengur fínt. Samt ættirðu að muna eftir því að kaupa g-streng eða bol áður en þú ferð að sofa í nótt. Friðar samviskuna og vísindamenn hafa komist að því að fyrir hvern einn bol sem ég sel þá frelsar guð 5 einstaklinga úr helvíti. Ómögulegt að nokkur tapi í þeim viðskiptum.

Það var kominn tími til að koma myndinni örlítið neðar, koma einhverju skemmtilegra inn. Það er líka frídagur í vinnunni í dag svo ég tek því rólega. Búinn að fylla baðkarið af rauðvíni, kveikja í hárlokk til ilmgjafar og sötra íslenskan móhító til að ná úr mér stressinu frá helginni. Maður verður stundum að vera góður við sjálfan sig og njóta lífsins.

Þrátt fyrir hellings vinnu um helgina þá gaf ég mér tíma til að fagna Stórammæli Voella Saeta(tm)(tm). Það var bara ein leið til þess að fagna því. Við klæddum okkur því í samstæðu hvítu hörjakkafötin, með lausa sniðinu og þröngu skálmunum, belgísku fjöllita súkkulaðislegnu silkiskyrtunum og skelltum okkur á salsakvöld niður í bæ. Ef salsa á einhvern tímann vel við, þá er það í stórafmæli. Við dönsuðum svo tímunum skiptir eins nálægt kvenfólki og við þorðum. Annars reyndum við bara að looka cool og forðast augnsamband.

Kvöldið endaði snögglega þegar Voelli Saeti(tm) rak augun í Krumma Gunnlaugs og reyndi með miklum sannfæringarkrafti að telja Krumma trú um það að heimurinn væri nú loks tilbúinn að taka á móti Böðlinum og skækjunni II. Einhver gestanna hafði greinilega hlerað samtalið því mikil múgæsing átti sér stað og u.þ.b. 30 tóku sig til og drógu Voella Saeta(tm) úr á hörinu. Engar áhyggjur Voella Saeta(tm) og hörinu heilsast vel.

June 7, 2007

Hefði þetta farið jafnvel í landann?

Það hafa væntanlega allir tekið eftir hinum glæsilegu auglýsingum Landsbankans um íslenska fótboltann. Færri vita hins vegar að stefnan var svolítið öðruvísi þegar fyrsta uppkasti var skilað inn. Og talandi um það, þá komst tobbalicious yfir það uppkast eftir eftirgrennslan í undirheimum auglýsingastofa klakans. Ég er ekki alveg viss um þetta:

May 30, 2007

Sérlegur útsendari k@stljóss í tilfinningaklámi

Það er merkilegur andskoti að þegar ég slysast til þess að horfa á k@astljós, þá verð ég alltaf að þjást í gegnum eina tilfinningaklámsfrétt. Er rétt að kalla þetta fréttir? Köllum það bara tilfinningaklám. Sex ára heimspekingar eða gamalmenni sem enn hafa heyrn. Sælukliður í Kórahverfi og allir ánægðir. Samt er gaman að sjá hver fær alltaf að ráðast á þessar uppsprettur tilfinninganna. Hvernig myndi manni líða ef á hverjum einasta ritstjórnarfundi þá er leikþátturinn nokkurn veginn svona:

Ritstjóri: Sigmar, það er viðtal við sjávarútvegsráðherra út af niðurskurði í kvóta. Jóhanna þú tekur viðtalið við gaurinn sem rekur barnaklámssíðuna úr kópaskarði og Seljan þú tekur viðtal við Davíð Oddsson út af þessu með að vera kominn út úr skápnum. Ragnheiður... svo þurfum við að fá einhvern til að taka viðtal við lækni og sjúklinginn hans á Akureyris, en það vill einmitt svo skemmtilega til að þeir eru nafnar!

Ég veit ekki með ykkur en mig væri eitthvað farið að gruna að ekki væri allt með felldu. Kannski væri ekki sama traust gagnvart mér og öllum hinu "alvöru" fréttamönnunum. Ég hálf vorkenni henni. Svipað og að vinna á Macdonalds og vera í því mikilvæga verkefni að sjá til þess að fyllt væri á saltið. "Eldhúsið er enginn staður fyrir þig eins og er, þú ert ekki búin að vinna hérna nema í þrjú ár."

Ekki það að "alvöru" fréttamenn á Íslandi séu eitthvað annað en stökkpallur fyrir hvaða gúbba sem er til þess að koma skoðunum sínum á framfæri án þess að þurfa að styðja þær eitthvað frekar. En fokk hvað Logi Bergm@nn er samt sætur!
Snilldin sem er kóngurinn og ég

May 29, 2007

Ég farða á mér hnakkann

Er það eitthvað óeðlilegt? Mér finnst það mikilvægt að aðrir fái smá augnayndi með í kaupæti með sæta bollurassinum. Núna erum við að tala saman. Loks búinn að ná ákveðinni sátt við kosti mína. Meikaður hnakki og bollurass... ég setti það alla veganna inn sem kosti í nýjustu atvinnu-umsókninni. Útlit hefur svo mikið að segja. Það lærði ég um helgina. Kannski lærði ég það of mikið.

Á borðinu mínu á Hótel Broadway gekk stafræn myndavél og allir voru að dást að myndalegu strákunum sem stúlkan hafði tekið myndir af. Þetta var kannski ekki Twilight Zone, en mikið rosalega var Tínu Törner tónlistin sem glumdi um allt frá sviðinu ekki að hjálpa til. Maður reynir að vekja sjálfan sig með því að klípa í geirvörtuna en stundum hjálpar það ekki til. Var eitthvað að spá í því hvort ég ætti að taka upp ipodinn og láta hann ganga með kyrr og hreyfimyndum af misjafnlega fáklæddum og glenntum stúlkum af internetinu, en það er stundum erfitt að gera eitthvað í fyrsta skipti.

Ég deyfði mesta sjokkið með áfengi og hallaði mér síðan að næsta borði og bauð konu á sextugsaldri upp á ókeypis bjórinn sem var í boði í nafni vinnufélagans sem sat við hliðina á mér. Honum virtist ekki skemmt. Mér var það. Ólíkir menningarheimar maður.

May 28, 2007

Alveg rólegur

Þriggja daga helgi... langt síðan það hefur gerst. Ég hef alla vegna nýtt tímann vel og gert nánast ekki rass frá því ég hljóp úr vinnu á föstudag. Enn í talsverðu sjokki eftir að hafa heyrt skítugar sögur af ómannúðlegri notkun sleifar á föstudag. Fólk getur verið sjúkt í hausnum.

Laugardagur var svo nýttur í það að prófa nýja gerð vindlinga. Áfengið flaut og sígaretturnar líka. Hefði ekkert á móti því að vera boðinn í svona teiti um hverja helgi.. þarf ekki að versla mér sígarettur næstu daga. Camel natural flavor... sama hvað það heitir ef það er frítt.

Ég er aftur kominn á þann tímapunkt í lífinu að stúlkur finna sig knúnar til þess að ranghvolfa augunum í áttina að mér. Hvað er málið með það? Sama hvaða stúlku ég bað um ókeypis sígarettupakka í veislunni þá urðu þær að ranghvolfa augunum þegar ég bað um pakka. Ég rétt vona að sígaretturnar hafi ekki verið á þeirra kostnað. Þetta væri svo sem skiljanlegt hefði ég verið að biðja um símanúmerið þeirra í leiðinni en svo slæmt var það nú ekki. Meira að ég hafi greinilega staðið fyrir sjónlínu þeirra á eitthvað meira spennandi.

Ætla að nýta mér þessa lífsreynslu og semja ljóð um höfnunina.

May 24, 2007

Runnin mesta reiðin

Mikil leiðindi í gær. Svona er lífið og maður verður bara að lifa með því.

Þá er það komið í ljós að vegna samviskusemi minnar verð ég í mánuð í viðbót í vinnu. Svo er það bara blossi. Blossast um evrópu á heitasta tíma sumars. Lofa að væla ekki yfir hita.

Á meðan er bara að þrauka er það ekki.

May 23, 2007

Mongólítar

Aldrei að breyta aftur.
Meira hórvíti..

... ef þessi helvítis komment koma ekki inn þá er ég fokking hættur.
Argasta hórvíti!

Af hverju langaði mig til að breyta um útlit? Nú koma kommentin ekki inn. Glæsifreakinlegt.

May 21, 2007

Ný búð!!!



Langar þig í bol eða g-streng með mynd af Ásgeiri Kolbeins en fannst hana ekki á internetinu? Nú hefurðu tækifærið:



Dramadrottning

Mánudagar eru yndislegur hlutur. Veita manni yl í hjarta líkt og tapsárir framsóknarmenn. En ég er ekki í vinnu þannig að ég geng um íbúðina klæddur einungis í hlýrann og leyfi gustinum að leika um tjöruna sem fagnar frelsinu.

Þessa dagana er ég að reyna að skipuleggja hvað ég eigi að gera í atvinnuleysinu. Á maður að ferðast? Leggja í andlega og fjölmenningarlega púkkið? Gera eitthvað ótrúlega flippað eins og að heimsækja Snickers-verksmiðjurnar, sjálfboðaliðast við að mæla fitumagn fyrirsæta fyrir sýningar, reifa sig í gengum evrópu með ferðatösku fulla af alsælu og glow-stick?? Ahhhhhhhhhhhh!!!!! Of margir möguleikar.

Ein spurning. Er einhver annar strákur þarna úti sem hefur lent í svipuðum aðstæðum og ég. Það eru alla veganna tvær fyrrverandi kærustur mínar sem neituðu að munnmakast fyrr en ég væri búinn að setja mig í þeirra spor. Önnur lét mig sjúga banana í hálftíma áður en hún hellti sig yfir mig og spurði mig í sífellu hvort þetta ætti virkilega að stuðla að jafnrétti í okkar sambandi. Jafnrétti? Ég að sjúga á banana og hún hefði í mesta lagi þurft að sjúga eitthvað sem er álíka og skólagúrka á stærð... ein af þessum minni skólagúrkum samt.

Hin klæddi mig í nærföt af sjálfri sér og tróð mandarínum ofaní brjóstahaldarann og lét mig ganga um fyrir sig. Svo kastaði hún í mig krónum og hrópaði: "dansaðu litli kveeeeeeeeen-maður!! Þú ert bara lítill kvenmaður!! Ha ha ah!"

Eru allar stelpur svona?

May 15, 2007

Er atvinnuleysi kynþokkafullt?

Stundum fær maður bara nóg. Dagurinn í dag býst ég við að hafi verið minn nóg-dagur. Byrjaði alla vegna á því að ég sagði bara upp. Þjónustustörfin hafa bara ekki lengur þennan undraverða og leyndardómsfulla sjarma sem þau eitt sinn höfðu. "Hvert fór kynþokkinn? Hvar ertu búðin sem ég þrái? Oh! Oh! Eilífðin! Hvar eru kassinn minn og strimill?" Söng ég einhvern tímann á árshátíð með Árshátíðarbandinu "Næsti gjörrusovell!" Við vorum brjálaðir búðarstarfsmenn með og vildum sigra heiminn með færni okkar í að skipta um kassastrimil á undir 3 mínútum og að kunna að minnsta kosti 34% strikamerkja utanað.

En nú er allt breytt. Atvinnuleysi blasir við. Ég myndi alla veganna ekki ráða skítugan fyrrverandi búðarstarfsmann til starfa. Ég er haldinn fordómum gagnvart þeim. Ég hef átt í of miklum samræðum við þá í gegnum tíðina. Kannski...ég hafi lent í fordómum gagnvart þeim mér óafvitandi. Rosalegt hvað maður er berskjaldaður gegn þessum hlutum.

Hvað tekur við? Mun ást mín á vinjettum og böski leiða mig út á hina hálu en menningarlega gefandi braut vinjettu-trúbadorsins? Á Laugaveginum með vinjettukaffi á brúsa og vinjettukonfekt, kyrjandi vinjettur við undirleik íslensku fiðlunnar. En fiðlan sú tónar einstaklega vel með vinjettum.

Allt þetta tal um vinjettur hefur svo sannanlega lyft mér upp. Er eitthvað sem vinjettur geta ekki? Estrógen-kikk sem ég fæ þegar ég kasta fram retoriskum spurningum! Farinn að setja á mig dömubindi.

May 6, 2007

Er þetta ljótt að gera?

Rifjar upp gamla tíma þegar maður var ungur og saklaus. Linkur

May 4, 2007

Heilagur sannleikur

Gott að ykkur líkar tónlistin. Mér finnst hún æðisleg, enda er ég æðislegur. Ætti mér að líða illa yfir því að finnast ég æðislegur, ég held ekki. Ég veit samt ekki hvað er að koma yfir mig með vorinu. Horfi slefandi á allt með sítt hár og stór brjóst. Kom sér heldur illa þegar ég horfði á pípara inni í búð um daginn girndaraugum. Gott ef af öskrum hans mátti ekki skilja að ég yrði brátt bráðkvaddur eftir að berja hausnum á mér í hnúana á honum. Kræst. Ætli áfengi verði bara ekki að duga til þess að berja þetta úr mér. Er búinn að strompreykja núna í að verða viku til þess að fylla rækjuna af tjöru en hún virðist andsetin. Andsetin af vori og síðhærðu fólki án dúnúlpu.

Ég var reyndar stoppaður um daginn og mér bent á að rennilásinn lægi eitthvað vitlaus í buxnaklaufinni og vísaði út. Þegar ég svaraði að ég væri í hnepptum gallabuxum horfði gamla konan á mig og roðnaði og missti út úr sér eitt stutt "æi." Mér er svo sem sama. Hef reynt að forðast þetta síðustu daga með því að nota tvöfalda límbandið í vinnunni til þess að líma hann fastan við sekkinn. Ef ég er samt mikið að hlaupa og svitna í vinnunni þá verð ég yfirleitt að skipta í hádeginu. Líka þegar ég fer á klósettið. Þeir segja að brennt barn forðist eldinn og eftir að hafa migið með rækjuna límda fasta við sekkinn þá reyni ég það ekki aftur. Það góða við það var að ég fékk að fara fyrr heim úr vinnunni. Ómögulegt að hafa starfsmann sem angaði líkt og núllið flakkandi um á milli viðskiptav***.

Mikið rosalega hata ég þá maður. Alltaf skal ég líka ná að rífast við konur á aldrinum fimmtugs til sextugs. Ótrúlegt. En maður sækir kannski í slagsmálin hjá þeim sem næstir eru manni í þroskastigi.

April 24, 2007

Allir hjá öllum púntur is

Lífið er yndislegur hlutur sem aldrei má taka sem sjálfsögðum hlut. Eitt sinn hélt ég mig nokkuð öruggan á föstudegi að ég myndi taka við betur launaðri og meira krefjandi stöðu hjá mikilsvirtu fyrirtæki hér í bæ, eða þangað til mánudeginum að ég komst að því að Voelli Saeti (tm) hafði send póst á allir@fyrirtækið.is með titlinum "berist til tobbaliciousar" og viðhengið mynd af 4 ára frænda hans nöktum. Þremur vikum síðar þegar ég hafði losnað úr gæsluvarðhaldi og fengið mér leyninúmer tókst mér samt sem áður að fyrirgefa honum. Það skilja bara ekki allir húmorinn manns. Ég ætlaði að hefna mín einhverjum mánuðum síðar með því að gera nákvæmlega sama hlut nema í póstinum sjálfum átti að fylgja linkur á dýraklámssíðu. Eitthvað klúðraðist það og linkurinn vísaði á ókeypis klámsíðu og Voella saeta(tm) var þakkað fyrir af yfirmönnum sínum með launahækkun og fyrirtækisbíl.

En í dag erum við sem betur fer vaxnir upp úr svona strákapörum. Í dag hlustum við á Wagner, drekkum dýrindis rauð- og hvítvín frá Chile og ræðum saman um bækur nóbelsverðlaunahafa. Þetta er allt hluti af því að fullorðnast. Enda liggur okkur á að fullorðnast. Það eru bara fimm ár eftir. Ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að heimurinn muni farast eftir fimm og hálft ár. Eftir að hafa horft á viðtal við Dan Burisch þá er ég þess fullviss að heimurinn muni enda frá og með 22. des 2012. Þá munu síauknar rafsegulbylgjur í geimnum valda því að náttúruleg ormagöng víðs vegar á jörðinni og svo kallaðir Looking Glass-sjónaukar, sem geta séð inn í framtíðina, beisla allri sinni orku inn að möndli jarðar og pólskipti munu hefjast. Að auki mun jörðin færast af tímalínu eitt yfir á tímalínu tvö. Eins og allir geta séð þá mun þetta hafa í för með sér mikla eyðileggingu og yfir fjórir milljarðar manna munu farast í þeim hörmungum sem ganga munu yfir. Öll von er þó ekki úti, nokkur hluti mannkyns eða um einn þriðji mun komast af og hefja nýtt líf á öðrum hnöttum. Einn flokkur þeirra, hinn norræni, mun fyrst flytja til Mars en halda svo áfram leið sinni og ná að lokum að setjast að á Oríon. Þetta hefur Dr. Dan frá einmitt þeim sama þjóðflokki en þeir hafa í þúsundir ára komið ó heimsóknir til okkar í gegnum áðurnefnd ormagöng.

Eina spurningin sem eftir stendur er þessi: "Einhverjar stelpur þarna úti sem hafa alltaf langaði til að sofa hjá mér en hafa ekki þorað að spyrja?"

April 18, 2007

Glaður?



Ég var sakaður um það í dag að vera óþolandi lífsglaður. Á hvaða eiturlyfjum eru þessir unglingar í dag? Veit ekki fúlari mann en sjál... bíddu nú hægur það er ein kona sem ég þekki sem er fúlari. Veit ekki næst fúlari mann en sjálfan mig. Mér tókst þó að nýta tækifærið til þess að kenna þeim nokkrar staðreyndir um lífið yfir höfuð. Nú ganga þau um Búðina með hangandi haus og vonbrigði í röddinni. Ég, aftur á móti, er skælbrosandi núna. Það eina sem ég sagði var að um 25 ára aldurinn þá hefði ég fattað að lífið hefði ekki mikinn tilgang og þetta væri bara spurning um að reyna að brosa meira en grenja þangað til maður myndi deyja. Það þýddi heldur ekkert að reyna að punga út börnum til þess að réttlæta tilvist sína, þau myndu hvort eð er svíkja þig síðar á ævinni og aldrei heimsækja þig á elliheimilið.



Ætli ég eigi aldrei eftir að fá þessa kitl tilfinningu í rassinn og hringja í guðnýju, allur sveittur og æstur, með yfilýsingar um "ég er loksins tilbúinn í börn! Farðu að prjóna vettlinga á barnabörnin!" Þetta virðist allt ætla að leka frá mér. Ég  er samt með þá útskýringu að ég sé bara ekki nógu eigingjarn til þess að eignast börn. Ok. Ég veit það myndi hjálpa ef ég væri ekki hreinn sveinn ennþá. Samt sem áður þá væri ég að gera öllum börnum í heiminum svo mikinn óleik með því að eignast barn. Ég yrði svo yfirburða besti pabbi í heimi að öll önnur börn myndu hata börnin mín og foreldrar þeirra fyllast öfundsýki út í nánast fullkomnar uppeldisaðferðir mínar. Ég er í raun að gera heiminum greiða með því að eignast ekki börn. Heimur, þetta er mín gjöf og verður mín arfleið.



Ég er mikið að spá í það þessa dagana að segja skilið við Búðina. Mér hefur yfirleitt aldrei liðið betur heldur en akkúrat þegar ég er nýbúinn að stökkva. Held ég sé búinn að fá nóg af því að vera bónus-sálfræðingur fólks sem heldur í alvörunni að fólk í þjónustustörfum sé ekki sama um þeirra vandamál í lífinu.





April 16, 2007

Chazz!!!! Pant fá að vera með ef þú tekur þetta að þér.

Hvaðan er myndbandið? Game on baby!!

Hey! Hættið þessu!

Vá hvað ég væri til í að vera lónsvörðurinn sem þarf að stoppa fólk að ríða í bláa lóninu.

Modest Mouse diskurinn og Kings of Leon eru að halda mér réttu megin við geðdeyfðarmörk.

Eru kosningar farnar að snúast algjörlega um skoðanakannanir? Hvað með málefni? Verð ég að skila auðu ef enginn hringir í mig til að fá mína skoðun?

Tryggingarfélagið sem bauð mér betri kjör af því þeir hringdu í mig og sögðu mér svo að ég myndi ekki fá jafn góð kjör ef ég myndi sjálfur leita eftir þjónustu þeirra má búast við að ég finni mér annað félag.

Það er vor í lofti andskotinn hafi það! Koma svo! Ég er kannski bara svona fúll af því að Voelli saeti(tm) sagðist bara vera vinur minn af því ég væri með lítið typpi og það veitti honum ómælda gleði. Mér er svo sem slétt sama. Þannig er bara lífið. Það eru ekki allir jafn vel hlaðnir. Það pirraði mig meira að vera kallaður snípurinn í sturtu í menntaskóla. Stelpur geta verið svo grimmar!
Mjöll meining

Pétur björn og jón voru æðislegir á föstudaginn. Bættu algjörlega upp fyrir vonbrigðin með Blonde Redhead.

Farinn að lifa lífinu.

April 10, 2007

Áróðurinn heldur áfram!

Ég er mikill áhugamaður um álfabikar og fann þetta skemmtilega kennslumyndband á netinu. Ég kýs að kalla það: "Það sem þú þorðir ekki að biðja kærustuna um að sýna þér." Þetta myndband er á skspænsku og kannski fáir sem ná hvað hún er að segja. Það er allt í lagi. Í stuttu máli er hún eitthvað að tala um tengslanet, launamisrétti og prjónaskap. Njótið:

April 9, 2007

Páskarnir gætu tekið við af jólunum

Margir sagnfræðingar eru sammála um að Jesús, eða D.J. ZúZ líkt og hann kallaðist áður fyrr, hafi ekki verið annað en skítugt ástandsbarn frá hersetu rómverja í Palestínu. Allir vita hvað varð úr Palestínu þegar hún óx úr grasi og veldur hún nú mér og fleiri löghlýðnum borgurum ómældri angist í hjarta og óöryggi vegna útbreiðslu hryðjuverka þaðan. Hver veit hvenær við lendum í hryðjuverkum? Það hlýtur að styttast í það, ég finn það á mér.

Finnst ykkur þetta ruglingslegt? Það gæti verið að ég sé enn undir áhrifum af sýrunni sem Guðm. Steingrímsson var að skrifa í fréttablaðið um páskana. Ég vil byrja að þakka honum fyrir að benda mér á að ég sé svona rosalega sólginn í vinnu að ég hef ekki tekið mér frí um páskana. Kannski þá líka um jólin Guðmundur? Gott ef þú gætir látið mig vita. Ég veit það núna til dæmis þegar ég var að vinna á skírdag hvað allir sem mættu til vinnu voru að tala um hversu miklir aumingjar aðrir íslendingar væru að vinna ekki á þessum degi. Það heyrðist ekki eitt orð um hvað fólk vildi miklu frekar vera heima hjá sér. Það virðist bara eins og fólk í þjónustustörfum hreinlega sækist í vinnu líkt og fíklar í eiturlyf.

Það skal ég láta þig vita minn kæri Guðmundur að það var ekki mín ákvörðun að hafa opið á þessum dögum. Það skal ég líka fræða þig um að þeir sem tóku þessa ákvörðun voru allir heima hjá fjölskyldunni yfir páskana. Svo kannski var það von þeirra sem eru í fríi heima hjá sér um gróða og þörf þeirra sem fastir eru í vinnu um nokkra þúsundkalla í viðbót um næstu mánaðarmót sem stjórnar þessu? En hvað veit ég. Ég hafði nefnilega ekki tíma til að liggja yfir námsbókunum yfir páskana. Ég var að vinna sjáðu til. Páskalambið fékk ég svo seinna um kvöldið þegar ég kom heim. Það heitir að vera fátækur námsmaður.

Hvaðan færðu að út að þeir sem vinna í hvað lægst launuðustu og vanþákklátustu störfunum séu með einhvers konar sameiginlegu átaki að reyna að taka réttmætt frí af restinni af þjóðinni? Er það þetta sem flaug í gegnum kollinn á þér þegar þú verslaðir í matinn á skírdag? "Mikið rosalega virðist erfitt fyrir þetta fólk að taka sér frí! Kann það ekki að slappa af og njóta lífsins?" Ætlarðu kannski að nota þetta þegar þú ferð í rúntinn með Samfó á vinnustaði að kynna málefnin? Prófaðu að benda þeim á að slappa af um páskana. Þetta sé ekki hægt með okkur Íslendinga, við verðum að kunna að slappa svolítið af. Ekki reyna að koma því yfir á goðsögnina um hversu rosalega eljusamir Íslendingar eru að þeir séu í vinnu um páskana. Hver einn og einasti þeirra hefði verið heima ef þeir hefðu átt möguleika á því. Ég skal hugsa til þín þegar ég verð í vinnu allan mánudaginn. Af því ég virðist bara ekki getað slitið mig eitt augnablik frá vinnu.

Að hugsa sér að þetta blogg átti nú bara að vera um nýjustu uppfinningu mína. Með hjálp frá Voella Saeta(tm). Hann átti hlut að máli og fær smá kredit. Nú verður heimurinn tekinn. HEIMURINN!! Við erum stórhuga núna, höfum þegar rætt við Davið Scheving sem býr að ómældri reynslu frá Sólar/Icecola-árum sínum og svo hafa einnig helstu MBA-sérfræðingar landsins sagt þetta einstaklega spennandi hugmynd. Hver er hún? Hver er hún? Rólegur félagi... hér birtist hún í fyrsta skipti og þar sem einkaleyfið er ekki enn gengið í gegn þá treysti ég á að þið misnotið ekki þessar upplýsingar.

Hinn íslenski mojito
eða Öxar við ána

1 teskeið sykur.
Safi kreistur úr tveimur kartöflum (50 ml.).
4 blöð af íslensku söl.
50 ml. Íslenskt Brennivín.
50 ml. Egils Sódavatn eða eftir þörfum.

Gott er að kremja söl með gaffli og maka í botn glasins. Til að gera drykkinn jafnvel enn girnilegri má skera rófu niður í báta og setja ofaní til skreytingar. Svo er bara að njóta!

March 30, 2007

Vika með stúlku..

Farinn að sækja stúlkuna til keflavítis. Svo er ég dottinn í það.

March 28, 2007

Hálfur maður?

Hef ekki getað bloggað vegna anna. Búinn að plokka annað hvert hár af öllum líkama mínum. Mér finnst breytingin ekkert rosaleg en finn fyrir minni vindmótstöðu í verstu kviðunum. Þetta kalla ég að lifa... og læra í leiðinni.

March 13, 2007

teyknymind... langur tími maður.

Íslenskar krónur!

Það er eitthvað svo uppbyggilegt að eiga í hér um bil útistöðum við gamalmenni. Eins og allir vita þá kunna gamalmenni ekki að hlusta og það veldur oft vandræðum. Í gær t.d. bað gamalmenni mig um að skipta fimmhundruðkalli. "Í krónur," sagði gamla konan. Ég horfði á hana í forundran og bað hana að útskýra betur fyrir mér. Þá greip hún frammí fyrir mér og hér um bil öskraði "krónur! íslenskar krónur!" Ég ætlaði ekki að fara að láta hana hafa 10 krónubúnt þar sem ég var nokkuð viss um að hún vildi ekki fá fimmhundruðkallinn í krónum. Ég reyni mitt besta til þess að trufla hana og komast að til að fá út úr henni að minnsta kosti hvort hún vilji hundrað- eða fimmtíukalla. Það gengur mjög hægt þar sem gamla konan heldur á þessum tímapunkti að ég viti ekki hvað íslenskar krónur eru og sé eins og allir unglingar farinn að hugsa í evrum.

Stúlkan fyrir aftan gömlu konuna faldi sig á bakvið séðogheyrt með risaglott á vörunum yfir óförum mínum. Það var engin leið að fá konuna til að segja hvaða útgáfu af klinki seðlabankans hún vildi. Þangað til fimm mínútum síðar og helling af þolinmæði minni kastað út um gluggann að hún loks muldrar eitthvað um hundraðkalla. Ég get svo svarið að á þessum tímapunkti var næstum liðið yfir stúlkuna sem reyndi hvað mest hún mátti að halda niðri í sér hlátrinum. Gamla konan fékk loks hundraðkallana sína og ég reyndi að halda aftur af skjálftanum sem var kominn í hnúana á mér. Kerlingin byrjar að raða í pokann og lítur til baka yfir röðina sem hefur myndast og spyr undrandi "talaði ég eitthvað óskýrt?" Röðin eins og hún leggur sig svaraði öll einum róm: "Nei, alls ekki."

Þetta er reynsla sem maður býr að seinna á ævinni. Setti inn nýja færslu á cv-ið þar sem ég benti á einstaka þolinmæði mína þar sem ég hefði ekki kýlt elliæra gamla konu í andlitið fyrir að vita ekki hvaða klink hún vildi.

March 11, 2007


Helgi helgi helgiNýtti mér helgina og kíkti á nýju sölu varnarliðseigna. Er núna stoltur eigandi 64 notaðra smokka sem fundust í einhverri kyndikompunni uppi á velli. Hvað ég ætla mér með þá veit ég ekki en kannski ég geti selt þá aftur með einhverjum gróða á internetinu. Ég skal viðurkenna að ég lagði ekki mikla hugsun í þetta þegar ég keypti þá. Svona spur of the moment hlutur. En þetta er svo sannanlega ævintýri og hefur vakið hjá mér lítinn vonarneista um framtíðina.

Sem slökknaði næstum því þegar Voelli Saeti(tm) var að segja mér slúður úr hásklnm. Þannig virðist sem karlkyns nemendur við skólann séu orðnir svo þreyttir að ideal karlmaður íslenskra kvenna á aldrinum 19-32 ára séu annaðhvort pólskir farandverkamenn eða afgreiðslumenn á kassa í matvöruverslunum að þeir séu farnir að veita hverjir öðrum kynferðislega greiða til að bæta upp kvenmannsleysið. Þeir eru víst farnir að bjóða öðrum karlmönnum úr sömu deild heim í mat og einn snöggan. Nú hef ég ekki fengið að sjá myndir en vinsælt er að jafnvel fjórir eða fimm hittist, sitjast í hring, loka augunum og taki þéttingsfast um félagann sér á hægri hönd. Þannig verður ekki neinn misskilningur á því að þeir séu samkyngirndir. Enda eru þeir ekki samkyngirndir, þeir eru bara að bregðast við þeirri leiðinlegu nýjung stúlkna að bíða þar til óþrifnir og bólugrafnir nemendur hsklns komist í góða vinnu.

Þannig velja þær sér víst maka. Eftir tekjum. En eins og allir vita þá eiga þær alltaf lítinn búðarstarfsmann, pólskan verkamann eða álversstarfsmann svo til eigin nota þegar eiginmaðurinn er í vinnu. Hvort þetta eigi eftir að hafa áhrif á stefnu stjórnmálaflokka þegar kemur að því að flokka fólk eftir hreinleika gena veit ég ekki. Við höfum tæknina (ÍE) en þar á bæ eru menn hræddir um að Íslendingabók fari í tómt rugl þegar genunum hefur verið stokkað upp aftur.

March 6, 2007

Samheiti

Ekki ætlast til að fá þjónustu með orðunum: "Strákur! Þjónustan hérna er hræðileg, þetta er allt miklu betra í Hag.. ."

Mín vegna máttu skottast í þá verslun. Þeir mega eiga þig.

March 1, 2007

Straumur

Horfði á samstarfsfélaga hringja úr gemsanum sínum í gær. Hún hringdi og sagði "Ég er að verða batteríslaus!". Ég horfði á hana og beið eftir því að hún félli fram á borðið og úr símanum bærist "ertu þarna? Halló! Ástin mín?" Það gerðist ekki og hún virtist að mér sýndist alveg fullhlaðin.

February 27, 2007

Faux pas, my friend

deEza var eitthvað að dást að mér um daginn að geta hangið inni á móður minni. Við hittumst aldrei svo það hjálpar til. Sameiginlegt átak til þess að forðast árekstra. Nema þegar matarboð eiga sér stað, þá er von á rifrildi og þá yfirleitt er það mér að kenna. Ég virðist ekki kunna mig í návist fjölskyldunnar. Verð því feginn þegar gönns flytur út því þá losnum við við þessi leiðindi. Sem þyrftu í raun ekkert að vera leiðindi ef hún væri bara örlítið meira opin. Ég var bara að lýsa fyrir henni, bróðurnum og kærastinu hans, ástinni minni, skáldsöguna/kvikmyndahandritið sem ég er að vinna í. Ég er mjög tekinn af þessu verkefni og á það kannski til að verða ögn ákafur þegar ég renni í gegnum söguþráðinn og skipti á milli persóna.

Sagan sem fjallar um venjulegt fólk sem dregið er inn í mjög svo óvenjulega atburðarrás þegar þau verða að takast sameiginlega á við illkvendið Salóme Þorkelsdóttur sem hefur sankað að sér auðtrúa meðlimum í JC-Ísland og ætlar að sprengja jörðina ef Bubbi Morthens ekki ullar í lulluna á henni. Þegar kemur að uppgjörinu og almúgi Íslands með Helga Björns sér til aðstoðar reynir að sannfæra Bubba um að hann verði að gera þennan litla hlut til þess að jörðin og þeir sem hana búa eigi framtíð þá stend ég upp og baða út öngum og fell í nokkurs konar trans þar sem ég hendist á milli persóna.

Þið sjáið það kannski fyrir ykkur. Þau þrjú sitjandi við matarborðið, hálfkláraðir ísar í skálunum og örlítil gufa sem stígur upp úr kaffibollunum. "Björt mey og hreeeiiiiiin..." hljómar undir og ég kófsveittur, rauður í framan og mikið niðurfyrir:

kvenmannsrödd: "En Bubbi. Hugsaðu um börnin! Eiga þau ekki rétt á sömu framtíð og þér bauðst í æsku?"
Bubbi situr með gítarinn og fiktar sig áfram með lag í smíðum. Lítur hægt upp á mannfjöldann fyrir framan sig og svo til hægri hliðar þar sem Helgi Björns stendur berfættur með fætur örlítið í sundur.
"Helgi minn. Er þetta lið með þér?"
Helgi lítur flóttalega á Bubba. "Þetteh ereh eðde-ender. Íeg gereh ehllt ferer eðde-enderner."
"Þú ert orðinn mjúkur með leiklistinni Helgi."
"Letteh....kkeh sveneh Bebbeh."
Uppgjafarstuna fer yfir hópinn þegar Bubbi lítur aftur niður á gítarinn og byrjar að glamra. Helgi lítur til baka og yppir öxlum. Hann virðist sjálfur hafa gefist upp.
Bubbi hefur upp raustina. "Ha! Ha! Ha! Sko. Þetta er ósköp einfalt. Ég er Bubbi Morthens! Sjáið bara Þingvelli. Ég hef aldrei samið lag um Þingvelli. Ég hef líka aldrei ullað í lullu og ætla ekki að byrja á öðru hvoru núna. Simpelt keis krakkar mínir."

Hér truflar Gönns mig og spyr "hvað er að ulla í lullu?" Ég svolítið hissa svara "sleikja píku mamma mín."
Þá kárnaði gamanið. Eitthvað um það að ég ætti ekki að vera að tala um svona hluti fyrir framan litla drenginn. Ég bendi henni á að hann sé orðinn 19 og ætti að geta höndlað þetta. Skiptums á einhverjum orðum í viðbót en svo endaði kvöldið í algerri þögn. Hún talaði þó við mig daginn eftir. Eitthvað sem hún ekki gerði í nokkrar vikur eftir að ég bauðst til að kenna bróður mínum að raka á sér punginn í miðjum hádegisverði á laugardegi.

February 26, 2007

Precious things

Nenni ekki að koma með langa feðasögu. Hápunktur alls var að vera fastur í útlandinu Englandi í tvær nætur. Ef ég hefði ekki getað hjakkast á deEzu þá hefði þetta verið.... hvað?.... að gista hjá henni og hanga með henni... hvað hélst þú?... skítugur, skítugur strákur! Fékk að gista hjá henni og komst svo loks til skSPánar. Tapas, fótbolti og kossar. Lýsir því sem fram fór. Fékk svo þrísome á leiðinni heim. Enn og aftur hjá deEzu með smá hjálp frá Fr. Dóru.

Ferðasögu lokið... nema... varð vitni að hér um bil slagsmálum gamalmenna. Sem væri ekki frásögu færandi nema hvað annar þeirra var dvergvaxinn og haltur! Dyravörðurinn sem skildi þá að var á sextugsaldri líka svo nú veit ég hvernig árshátíðin á Grund lítur út. Snilld.

Er einhver annar búinn að sjá tilganginn með þessum auðkennislykli? Ég er búinn að útiloka flestar tilgátur og hallast nú að tveimur ástæðum fyrir því að þetta var sett á laggirnar. Annað hvort er kbanki banki og co búnir að kaupa himnaríki og í hvert skipti sem þú þrýstir á takkann þá deyr engill eða sjálft tækið er fyllt að innan með pólóníum og þegar þeir sjá að þú ert búinn að greiða upp yfirdráttinn þá hleypa þeir því út og ganga frá þér. Þeir eru tilbúnir að fara alla leið.

Eins og femínistar. Það virðist sem öllum klámsíðum á netinu hafi verið lokað eftir að bændasamtökin sögðu hingað og ekki lengra. Mér finnst þetta fínt. Getum við nú ekki bannað bretum að koma til landsins því þeir eru á móti hvalveiðum? Hvað með bandaríkjamenn víst þeir eru að drepa saklausa borgara í sínu heilaga stríði gegn hækkandi bensínverði? Nú er ráð að stofna þverpólítiska nefnd sem getur ákveðið fyrir okkur hver má koma til landins og hver ekki. Á hverjum flugvelli gætum við svo hengt upp plakat með fyrirsögninni "You are not welcome!" og á eftir fylgdi listi af starfsgreinum og skoðunum sem við teldum ekki sæma okkar hreina og góða landi. Farinn að skoða klám. Skemmtið ykkur.

February 8, 2007

Farinn.

Belgískur bjór og franskar konur! Ég er farinn til skSpánar!

February 7, 2007

<span style="font-weight:bold;">Ég var bara í pásu maður!</span>

Hvað er þetta? Smá pása út af vinnu, kærustu og almennum leiðindum. Reyndi að brjóta það upp með því að sleikja hráa kjúklinga í vinnunni svo ég gæti orðið frægur fyrir það að vera fyrsti Íslendingurinn til að næla sér í fuglaflensu. Sá forsíðuna á dv í hillingum og brjálaðar grúppíur sem eltu mig á röndum til þess að næla sér í tvær mínútur af alsælu með hinum ekki svo vel niðurvaxna "Fuglaflensugaur." Það næsta sem ég komst því var einhvern neðanmálsklausa í dagbók lögreglunnar þar sem þeir stoppuðu mig við að eltast við gæsir á túninu fyrir framan Háskólann. Mér finnst ég hálfsvikinn. Maður getur nálgast fíkniefni, barnaperra og klám út um allt en ekki skitna fuglaflensu. Cazz, ef þú gætir reddað þessu þá væri það algjör snilld. Þarf bara smá, ekkert til að drepa mig, bara nóg til að ég verði frægur.

Fór meira að segja á bókasafnið í gær. Ekkert í sambandi við fuglaflensuna, reyndi einu sinni að sleikja bókaverði og bókanjerði á gerðasafni til að ná mér í flensu... þetta lið er svo sótthreinsað af bókasafnssetu að það er ekki einu sinni hægt að ná sér í flösu hvað þá flensu af þessu liði. En mér leið samt eins og ég væri að skrá mig í kúrsinn "samkyngirnd 101" með allan catalóginn frá Páli Óskari og danskar málfræðibækur. Svona svipað og Hörður Torfa sjötíuogeitthvað nema hvað þá var engin Páll Óskar heldur bara Katla María.

Og nú eru það bara útlönd! Önnur pása sem sagt yfirvofandi. HaddiThor má samt alveg vera rólegur því ég kem vonandi aftur. Fæ meira að segja að gista hjá fyrrverandi á leiðinni heim. Innslag í fílófaxið 19-20 feb 2007: "Muna það að hella sig vel fullan, reyna við fyrrv. með tækninni "Buxur á hælum. Hlaupa hana uppi. Æpa: "Manstu eftir þessum?! Langar þig að snert´ann?! Ég sé alveg að þú vilt snert´ann!"""

Ef þið saknið mín hræðilega mikið á meðan ég er í burtu þá er hægt að minnka sársaukann með því að líta við heima hjá Voella Saeta(tm) en hann ætlar einmitt að vera með fjáröflun til styrktar enduropnunar rúntsins. Hann og félagi hans, Einir Eimar Hilmisson ætla að lesa upp úr verkum Dostojevskís og er gestum og gangandi boðið að líta við og fá sér kaffisopa og hlýða á lesturinn. Ég hef litið við á æfingum og ég verð að viðurkenna að ég hughreifst af tilfinningalegri nálgun þeirra á ritverkum Dostojevskíj... ar? ... is?.. . Gestaþraut líka: Hvenig í fokkinu beygist karlmannsnafnið Einir í fleirtölu?

Engiljón Blævar Embrek .... ??? ... Que?! Ó góður guð gefðu mér eignist drengur!!!!

January 22, 2007

Ertu fallinn, berlínarmúr?

Hvað myndi ég gera án vinnunar? Hún er mér ávallt hugleikin 24 tíma á dag. Verð að afsaka það að geta ekki bloggað þar sem kærastan heldur mér á netinu í æsispennandi samtölum.

Kannski ég hætti bloggi vegna kærustu? Er það einhver veiki?

January 17, 2007

Mig vantar....

.. eitthvað. Langt síðan ég hef litið hérna inn. Spennandi hlutir að gerast sem veita lífi mínu fyllingu. Mmmmm mmmmm mmmm. Sá helsti verandi vinna mín í þjónustustarfi. Ég hef algjörlega misst álit mitt á heilbrigðiskerfinu. Svo virðist sem þúsundir ósjúkdómsgreindra geðsjúklinga fái að ráfa um götur borgarinnar og skipta peningum fyrir vörur og/eða þjónustu.

Ég held þetta sé að versna með hverju árinu. Þá sérstaklega vegna þess að eldri borgarar virðast fá að flakka miklu meira um sjálfir en áður. Stóð ekki í Gráskinnu að "læsa á eldra fólk sem náð hefur sextugu í dimmu röku herbergi og hleypa einungis út á jólum, páskum og sumarjafndægrum." ?

Minnir að ég hafi eitthvað lært um það í mr. Ekki viss samt. Ætla að slútta þessu stutta innslagi til að minna á að ég er enn á lífi... langt kominn í fertugt... með sögu úr raunveruleikanum. Mínum.. hann er oft furðulegri en skáldskapur.

Þannig er að í mínu starfi þarf yfirmannsréttindi til þess að skila hlutum. Ekki merkilegur hlutur en er þess valdandi að krakkarnir sem slysast inn í vinnu trufla mig óendanlega mikið. Einn daginn er ég að gera eitthvað yfirmannslegt eins og að bora í nefið á mér þegar það er bankað á dyrnar á búrinu sem ég er inni í og ungur starfsmaður biður mig að aðstoða sig því að á kassanum er kona sem vill skipta líters gosflösku í hálfs líters. Gott og vel segi ég. Skokka á kassann og undirbý mig til þess að stimpla inn aðgangsorð mitt til að skila stóru flöskunni. Eftir um það bil tvo tölustafi heyrist í starfsmanninum við hliðina á mér: "Ja. Sko. Hún er ekkert búin að kaupa þessa stóru."

Ég elska lífið. Ég elska unglinga. Drottinn blessi heimilið.

January 8, 2007

Hérna eru myndir!

Myndir komnar úr ammælinu. Á von á því að fá fleiri bráðlega.

Njótið

January 2, 2007



Næ ekki af mér brosinu

Er enn í gleðivímu frá ammælinu. Ég ætlaði að biðla til þeirra sem voru með myndavélar í veislunni að senda mér... ef þeir nenna... myndir frá herlegheitunum. Emailið er eins og áður tobbik hjá gmail.com .

Nú er að athuga hvað þetta ár hefur uppá að bjóða. Bring it on eins og myndin sagði.

December 30, 2006

Takk fyrir mig!!

Partýið var algjör snilld. Þakka danniliuz litla bróður fyrir frábæra hljómsveit, öllum þeim sem sungu og mættu. Takk fyrir gjafirnar og allt saman. Ég brosi allan hringinn. Snilld. MóFó snilld.

December 29, 2006

December 18, 2006

jæja krakkar mínir

Undirbúningur fyrir ammæli stendur nú sem hæst. Það hefur vantað að fólk sendi mér inn lög til þess að syngja með hljónstinni. Hún þarf tíma til að æfa sig og þess vegna væri gott að heyra frá ykkur með lög!

Annars hefur þema verið valið. Þemað er hlýrabolir. Þeir eru einmitt vanmetnasta tískufyrirbæri sögunnar.

Svo, senda póst á tobbik(hjá)gmail.com með laginu sem þú ætlar að syngja og kaupa hlýra eða dusta rykið af gamla hlýranum sem legið hefur inni í skáp.

December 15, 2006

Nei nei nei

Mig vantar hjálp. Tvær hjálpir.

Fyrsta hjálpin er sú að ég er á fullu að skrifa ljóðabók. En mig vantar nauðsynlega einhvern sem kann að teikna. Ég er álíka góður að teikna og davíð er hógvær. Bókin er byggð á hugmynd Voella Saeta(tm) og fjallar um ævintýri Peppe..... ætti ég að koma með forsmekk? .. ok .. hér er dæmi:

"Pétur pjakkur geiflar sig.
Prakkari mikill, mjóna.
Ómótaður efniviður...
í skítugan fullan róna."

Ef einhverjir braghættir hafa verið brotnir. Þá tek ég fulla ábyrgð á því.

Annað sem mig vantar hjálp við og kemur líka Voella Saeta(tm) við. Ég hitti hann á kaffihúsi í gær og allt í lagi með það. Hann fór svo á klósettið og þegar hann kom til baka þá strauk hann vísifingri hægri handar yfir varirnar á mér. Hann vill meina af því að hann þreif ekki á sér hendurnar að tæknilega séð hafi ég nú blowað hann. Er þetta satt? Hann ber við sig einhverjum vísindum um "Laws of transport" og þar sem húðflygsur hafi borist af typpinu á honum yfir á varirnar á mér... þið náið þessu.

Er einhver með rök sem afsannar þetta?

December 14, 2006

Fallvaltar vinsældir

Þetta átti að vera árið sem ég yrði kosinn vinsælasta stúlkan í Hí. En mörg góð plönin ganga ekki upp og mér sýnist sem mín snilldaráætlun ætla að gera slíkt hið sama. Þetta leit vel út á pappír en verklegi hlutinn færði mér aðrar niðurstöður en ég hafði gefið mér. Sko. Sigta út sætu og skemmtilegu strákana og fara á deit með þeim. Ef allt gengur vel á stefnumótinu þá er aldrei að vita hvert nóttin leiðir mann. Þeir sem muna eftir mér bæði úr piparsveininum og ástarfleyinu vita hvað ég er að tala um. Ég er bara svo mikill sökker fyrir rómantík, rauðvíni og ilmkertum.

Allt gekk eins og í sögu til að byrja með. Kvöld eftir kvöld var ég á dýrustu og bestu skyndibitastöðum borgarinnar að bragða á dýrindis hamborgurum og kjúklingabitum með sætustu og efnilegustu drengjum háskólans. Flestir þeirra fengu einungis að fylgja mér heim að dyrum og hlutu koss að launum en nokkrir náðu þó að heilla mig það mikið að fá að gista nóttina í Túninu.

Mér leið eins og kóngi í ríki mínu, ég var vinamargur og með hverju kvöldinu bættist nýtt nafn í hópinn. Menn heilsuðu mér með nafni á kaffistofunni og nikkuðu til mín þegar við hittumst úti á götu. Þá fór að bera á öfundsýkinni.

Fyrst var þetta einungis pískur í nokkrum stúlkum, en breyttist fljótt í ill augnaráð og heilar ráðstefnur kvenkyns nema á göngum bæði aðalbyggingar og odda. Eftir því sem hatur þeirra á mér óx þá fóru vinirnir af listanum að detta út af sama skapi. Menn tóku sveig framhjá mér þegar við mættumst og ekki var ég lengur æskilegur sessunautur í kaffi- eða skólastofum. Stelpur geta verið svo grimmar þegar þær ráðast á mann. Ég sá að þær höfðu skrifað á speglana á klósettunum og varað bæði stráka og stelpur við mér.

Nú sit ég einn heima og enginn svarar sms-um frá mér. Ég þarf að finna nýja leið til að eignast vini.

December 12, 2006

Ég vissi það!

Ég er með kaldan svita og sef ekki á næturna. Hann hló að mér helvítis heimilislæknirinn þegar ég varaði hann við þessu fyrir þremur mánuðum. Hann hlær ekki núna þegar ég heimta af honum leyfið. Ég heimta að "Prófkjörssýki" verði viðurkenndur sjúkdómur og við sem þjáumst af honum hljótum viðeigandi meðferð.

Ef ég gæti nú bara fengið eitt prófkjör í viðbót.. þá yrði allt svo betra... bara eitt og svo skal ég hætta... ég lofa...

December 9, 2006

Er þetta skúbb ársins?

Já félagar. Sambönd mín í plötuheiminum hafa látið mér í hendur plötu sem ekki er að finna í plötutíðindum. En eigulegur gripur hér á ferð!

Hvern hefði grunað að honum væri svo margt til lista lagt?

Umslagið lítur svona út:


Og hér má heyra auglýsinguna sem ætti að fara í loftið næsta miðvikudag ef mínar heimildir eru traustar.

Kópajól!

December 7, 2006

Hvað er að manninum?

Ég veit ekki hvað hefur komið yfir minn gamla félaga. Hann dauður á öllum æðum. Er hann kominn með einhvers konar lífsleiða? Ég reyni hvað ég get til að hjálpa honum. En það virkar ekkert, diskókeila.. sem ég man að skildi hann eftir einu sinni í tárum og orðunum "ahhhhh!!! Þetta er það fallegasta leisershow sem ég hef séð!! Bú hú hú!!"

Nú náði hún ekki að hreyfa við tjörutyppinu á honum. Ekki að tjörutyppið hafi hreyfst í mánuði. En þó hann hætti að reykja núna þá yrði það eins og að blása lífi í leikaraferil Pee Wee Herman. Nema hann myndi fá sér svona plasttúbur inn í typpið sem hann gæti síðan stjórnað eins og beygða hlutanum á plaströri? Það er hugmynd. Eða einhvers konar sterameðferð? En nóg um tobbalicious og hans getuleysi. Við viljum ekki að allur heimurinn viti af þessu.

Af mér er það aftur á móti að frétta að ég hef eignast einhvers konar ofurkrafta. Ég get haldið hlutum á lofti með hugarorkunni einni saman! T.d. get ég haldið sjálfum mér á lofti, en einungis ef ég er í skóm. Það virkar ekki ef ég er berfættur eða í sokkum. Með sokkunum virkar það nokkurn veginn en ég er asskoti valtur. Nú blogga ég og drekk kaffið úr bollanum sem svífur fyrir framan andlitið á mér.

Það furðulegasta við þetta allt saman er að kraftana fékk ég sama dag og Ariel Sharon fékk heilablóðfallið. Ætli þetta sé eitthvað tengt? Hafa hans ofurkraftar fundið sér samastað í mínum líkama eftir að hans gafst upp? Má ég búast við sömu örlögum. Verður mér boðin staða forsætisráðherra Ísraels?

Svör við þessu... kem ég ekki með fyrr en frostrósirnar eru farnar af landi brott. Ég er búinn að vera með stingandi hausverk frá því þær komu til landsins...

Enn að leita að hinu eina rétta sjálfi

Baróninn fór víst eitthvað öfugt ofaní suma okkar. Fékk þetta sms í gær: "Thetta er nafnlaus hotun. Eg aetla ad drepa thig ef thu haettir ekki med thetta barons fifl. kv. HaddiThor.

Svo mig langar til að breyta til. Finna nýjan mig. Gæti ég ekki verið ábyrgðafulli starfsmaður launadeildar í meðalstóru virðulegu fyrirtæki? Með tvö komma þrjú börn og eiginkonu sem hangir með mér af því hún hræðist það að deyja ein. Ekki það að mín afstaða til sambandsins væri eitthvað öðruvísi. Það eina sem ég hræðist í lífinu er að deyja einn og yfirgefinn á Grund... ásamt fleiri hlutum eins og múslimum (eða bara útlendingum yfir höfuð), vandræðaunglingum, tvöföldun suðurlandvegar og hraðakstri.

Samt stunda ég hraðakstur á suðurlandsvegi. Ég meina kommon! Það eru hin fíflin sem kunna ekki að keyra. En þegar þeir hafa tvöfaldað suðurlandsveg þá verður örugglega ein akrein sem við fáu sem kunnum að keyra verðum á en hinir á hægri. Svo ættu þeir bara að leggja strætó, ég meina eru þetta ekki hvort sem er bara einhverjir öryrkjar og listamenn sem taka strætó? Ekki það að ég hafi eitthvað á móti öryrkjum og listamönnum, en eru listamenn ekki bara heima hjá sér að mála og semja ljóð og öryrkjar að búa til kannski möppur eða eitthvað á sambýlum? Værum við bara ekki að hjálpa þeim? Þau væru bara á sambýlinu og myndu ekki verða sér að voða.

Ég elska Bubba. Bestu lögin hans eru Svartur Afgan, Ísbjarnarblús og Það er gott að elska. Mér finnst líka klassík ógeðslega góð tónlist. Sálin og sinfó var allgjör snilld. Fór svo með tengdó og konunni á Bjögga og sinfó. Þeir sýndu alveg að þeir eru á pari með þessum gömlu þarna Beethoven og þeim sem voru að semja í gamla daga. Vonandi að Bubbi verði á næsta ári. Þeir hljóta að koma með þá tónleika. Þetta verður stærsti viðburður aldarinnar.

Mér finnst gaman að ferðast og kynnast nýjum löndum. Ég elska Spán og spænska menningu. Mexíkanska líka. Er búinn að fara til Benidorm, Kanarí, Alicante og Cancun. Ég finn mig svo vel í þessari menningu þeirra. Af hverju eru til dæmis engin froðudiskó á Íslandi? Benídorm er einn fallegasti staður sem ég hef komið á. Bílarnir á götunum maður! Ég sá að minnsta kosti svona þrjá Ferrari þarna. Þeir eru með rosalega góða ítalska pizzustaði og stelpurnar á ströndinni eru rosalegar. Ég kynntist voðalega lítið af Spánverjum og var meira með Englendingum. Spánverjarnir virðast leggja sig voða lítið fram og rosalega erfitt að finna Spánverja sem kunna einhverja ensku. Það sama í Mexíkó. Mér finnst þeir ættu að leggja sig örlítið fram, maður er búinn að kaupa miða og koma til þeirra og svo geta þeir ekki talað við mann! Ég vorkenndi þeim líka svolítið yfir því hvað þeir eru fátækir og eiga litla menningu. Maður byggir ekki menningu á nautaati. Maður þarf Laxnes til þess. Ég þarf reyndar einhvern tímann að lesa bók eftir hann. Ég ætla bara að vona að hann sé jafn skemmtilegur og Dan Brown.

Á næsta ári förum við örugglega til Ítalíu. Tvær vikur á Rimini til að kynnast ítalskri menningu. Ég hlakka rosalega til. Gummi vinur minn sagði mér að þeir væru með einhverja bestu ensku bari sem hann hefði farið á.



December 5, 2006

Nú er kominn tími á breytingar

Ég hef alltaf haldið að tobbalicious hafi aldrei verið nógu kúl. Einhver skítugur gaur með gleraugu á bláum speedóum á aldrei eftir að gera sig. Eftir að hafa rúllað yfir einhver blogg hjá fólki sem ég þekki ekki þá sá ég hvað er að virka og þar af leiðandi hvað er ekki að virka hjá mér. Í fyrsta lagi er það nafnið, tobbalicious, hvað á það eiginlega að vera? Svo ég fór að hugsa, hvað er kúl? Mafían er kúl. Er þá ekki kúl að finna eitthvað gott mafíunafn til að kalla sig? Mafíunöfn, mafíunöfn, mafíunöfn... ég veit ekki... Pablo?... Pedro?... eða kannski Carlos? Já, Carlos, alveg eins og í Carlito´s way!! Hver er ekki kúl ef hann heitir Carlos?

En Carlos er kannski ekki nóg? Ég þyrfti kannski að finna kúl nickname líka? Vandamál... ég er ekkert góður í svona.. Baróninn? Keisarinn? Nei, baróninn er betra. Carlos barón! En ég myndi alltaf kalla sjálfan mig Baróninn! Ég er í alvörunni með gæsahúð! Ég ætla að prófa:

"Baróninn var þokkalega í stuði um helgina maður! Su casa að sippa mohítóa og staupa!"

Svolítið sorglegt kannski? Vantar mig ekki gengi, eða posséið? Allir kúl vinir mínir fá líka kúl nöfn. Pedro Cortez á einn að heita en verður alltaf kallaður Kutinn! Pedro Kuti! Held mig vanti samt einn í viðbót sem væri með eitthvað svona númeranafn.. þykir ekki kúl að vera með svona þúsund í nafninu? Hann verður samt íslenski armurinn af litlu mafíunni minni. Palli áttaþúsund! Kannski af því hann leggur alltaf fjóra kjarval undir í pókernum! Vó! Þarna er nýja nafnið komið! Hann mun alltaf verða kallaður Palli fjórir kjarval! Þar með er posséið eiginlega komið. Restin verður bara aukaleikarar sem detta inn öðru hverju. Prófum aftur:

"Baróninn var í þokkalegu stuði um helgina maður! Su casa með Kutanum og Fjórum Kjarval að sippa móhító og staupa!"

Þetta er miklu meira kúl. Maður verður að eiga kúl vini til þess að geta verið kúl. Stendur í biblíunni. Kúl vinir með kúl nöfn að drekka á kúl hátt. Það þarf mikið til að ég klúðri þessu. Ætli ég þurfi ekki að bæta við einhverjum vinkonum líka. Þær verða samt allar að heita tveimur nöfnum. Örugglega samt auðveldasti hlutinn, bara loka augunum og treysta á innsæið... bíðið... adda dís .... begga rut ... aldís aldís ... reynum nú aftur:

"Baróninn var þokkalega í stuði um helgina maður! Su casa með Kutanum og Fjórum Kjarval að sippa móhítóa og staupa meðan við biðum eftir að stelpurnar, adda dís, begga rut og aldís aldís mættu í geimið! Fjórir Kjarval hafði droppað við í Björkinni og reddað Cubans handa mobinu enda tastetast móhítóinn ekki nema með góðum cuban!"

Þetta er að gera sig. Ég þyrfti kannski mynd líka? Til þess að fullkomna hinn nýja mig. Gamaldags mafíumynd. Kúl maður! Fixum þetta... augnablik...

...



Er þetta ekki svona eins og hún hafi verið tekin fyrir 50 árum síðan? Við reynum þá að klára þessa færslu:

"Baróninn var þokkalega í stuði um helgina maður! Su casa með Kutanum og Fjórum Kjarval að sippa móhítóa og staupa meðan við biðum eftir að stelpurnar, adda dís, begga rut og aldís aldís mættu í geimið! Fjórir Kjarval hafði droppað við í Björkinni og reddað Cubans handa mobinu enda tastetast móhítóinn ekki nema með góðum cuban!

Kutinn var náttlega wasted fyrir midnæt maður! Búinn að bjalla í leigara og kominn úr að ofan! Kutinn er crazy maður! Fórum beint niðrá Ólíverinn og straight thru gegnum vipið! Þokkalega sem Gummi Bouncer er farinn að recogniza mobið þegar það er í feitu djammi! Beint í staupin á barnum og lentum í eitthverjum strútum sem voru með attitude! Fjórir Kjarval var náttlega mættur beint í faceið á þeim og þú veist sagði bara "Ef þú meikar ekki mobbið þá geturðu bara meikað þig heim, skilurðu?" "

... þetta er að koma. Örlítið sem þarf að fínpússa þetta. En ég gæti loksins verið að finna minn stað í lífinu.

December 1, 2006

100

Í þessum mánuði verð ég þrítugur. Paura! Blowjob handa þeim sem verður númer 100.

November 30, 2006

Vill hún mig ekki?

Ég hallast að því Guðný vilji mig út af heimilinu. Ég er ekki alveg fullviss um það en það er ýmislegt sem gefur það til kynna. Eins og gærdagurinn. Ósköp venjulegur og lítið sem gerðist, þangað til ég lagði mig. Þannig er að ég var að lesa bók í rólegheitum inni í stofu og eitthvað virðist ég hafa lagt mikið á mig við lesturinn því ég steinsofnaði. Það hefur komið fyrir áður og ég hef aldrei fundið mig knúinn til þess að skrifa um það áður. Það sem á eftir gerðist er hins vegar vert að minnast á og vakti mig til umhugsunar hvort Guðný væri í alvörunni að fylgja eftir hótuninni "Ef þú kemur þér ekki út innan mánaðar, þá drep ég þig."

Ég vaknaði eftir um klukkutíma og það fyrsta sem ég tók eftir var að ég sá allt úr fókus. Gleraugun voru ekki lengur á nefinu á mér. Það er meira mál en margur heldur. Ég er nefnilega staurblindur án gleraugna. Þar sem ég hafði sofnað með þau að andlitinu þá þreifaði ég í kringum mig og á gólfinu fyrir neðan sófann. Engin gleraugu. Svo ég fór að hugsa, veit ekki á gott en stundum neyðist maður til þess. "Var ég ekki með gleraugun á mér?" Ég vissi að það stæðist ekki, hefði ekki einu sinni getað séð bókina í höndunum á mér án gleraugna. Lífinu lifi ég ekki án gleraugnanna svo ég skreið á stað í leit að þeim. Það gat ekki annað verið en þau lægu einhversstaðar á gólfinu í kringum sófann. Þar sem ég skríð um á gólfinu þá heyri ég eitthvað þrusk fyrir aftan mig. Ég sný mér snöggt við og sé skuggamynd Guðnýjar í dyrunum að stofunni. Hún segir við mig: "Ertu að leita að þessu?," og réttir út höndina til þess að sýna mér eitthvað. Ég er heppin að sjá höndina hreyfast úr fimm metra fjarlægð.

"Eru þetta gleraugun mín?," spyr ég. Ég býst við því að hún hafi kinkað kolli til samþykkis því hún sagði ekki neitt. Svo ég spyr hana aftur "ertu með gleraugun mín?" "Já," segir hún í þetta skiptið og ég heyri eitthvað skella á parketinu. "Hvað var þetta?," segi ég og sný höfðinu í allar áttir starandi út í tómið. "Úpps!," segir Guðný, "ég virðist hafa misst þau. Þetta er stórhættulegt. Það gæti einhver..." brothljóð " ...stigið ofaná þau ... æ æ æ." Ég spóla á stað á sleipu parketinu í áttina að henni. Þegar ég loks kemst upp að henni þreifa ég fyrir mér á gólfinu og finn þar gleraugun mín. Öll beygluð og glerin bæði brotin. Ég lýt upp til þess að reyna að sjá framan í andlit þeirrar Guðnýjar sem er svo ill að geta gert svona hlut. En ég þarf ekki að sjá framan í hana því kaldur illkvittinn hláturinn sem ég heyri koma frá henni segir allt sem segja þarf.

Ég er enn á hnjánum með leifarnar af gleraugunum í höndunum. Hún snýr sér við og býst til að ganga út úr stofunni en snýr sér við í dyragættinni og segir við mig: "Ég var ekkert að grínast. Ég vil þig út. Þú hefur verið varaður við. Næst verður það líkamlegt tjón." Svo gekk hún út.

November 29, 2006

Fokkblogger

Það er eitthvað að þessu bloggerdrasli. Þarf að finna mér annað. Get ekki bloggað, editað né gert fokk. Getur einhver bent mér á betri bloggdrasl?

November 28, 2006

Ítalskar kvikmyndir og eigin ljóðagerð



Hver segir síðan að maður geri
aldrei neitt. Hangi öll kvöld einn í bíó að horfa á ítalskar kvikmyndir. Ef
einhverjum langar með þá á ég einhvern helling af 2 fyrir 1 miðum. Næsta
bíókvöld er á miðvikudag. Náði reyndar að plata Voella Saeta(tm) með mér á aðra
myndina í gær. Það truflaði mig svolítið að hann var allan tímann að æpa "hvar
eru keeellingarnar?! Eru engar foxý keeellingar á þessum homma listamannamyndum
þínum?" Svo í hvert skipti sem eitthvað kvenkyns birtist á tjaldinu heyrðist í
þeim Saeta(tm) annaðhvort "Ljóóóóót!!!" eða "Sæææææt!" Ef aftur á móti karlmaður
birtist þá gólaði hann yfir allan salinn "Hooommi með brilljantín í hárinu!"



Þó svo ég væri kominn ansi langt niður í sætið í lok myndarinnar þá var þetta
allt í lagi. Ég var þó næstum því hlaupinn út þegar Voelli Saeti(tm) sneri sér
að eldri hjónum fyrir aftan okkur og spurði hvort þau héldu að aðalleikkona
myndarinnar væri rökuð að neðan eða ekki. Sem betur fer móðguðust þau og gengu
út svo ég gat klárað myndina. Veit ekki hvort ég leggi í það að bjóða Voella
Saeta(tm) með mér aftur.



Ég fékk reyndar svona 2 fyrir 1 um helgina líka. Tvær sem kölluðu mig hálfvita
en ein sem hrósaði mér.  Ef ég væri ekki svona vanur því að ókunnugar
stúlkur og/eða konur væru að  ráðast á mína persónu þá hefði ég móðgast.
Ætli það sé ekki bara fullvissa mín um hversu mikinn húmor kvenmenn myndu hafa
fyrir því að vera kallaðar hálfvitur sem gerir mig svona ónæman fyrir köllum og
árásum þeirra. Allir vita hversu rosalega erfitt er að móðga kvenmenn. Þá
sérstaklega með orðum. Ég held ég hafi aldrei nokkurn tímann á ævinni séð konu
móðgast eða reiðast út af einhverju sem sagt hefur verið við hana og þær virðast
engan áhuga hafa að leita skýringa í tvíræðum setningum. Þess vegna myndirðu
t.d. aldrei heyra konu segja "Hvað meinarðu með því?"



En nóg um skilningsríkar konur. Það líður að jólum. Samkvæmt áralangri hefð þá
hafið þið hjálpað mér við að velja jólakort til að senda til vina í útlöndum.
Málið í ár að ég get ómögulega gert upp á milli tveggja þema. Hvort er sætara,
selir eða apar? Setjið ykkar atkvæði í kommentakerfið. Apar eða selir? Selir eða
apar?



Þema 1 apar:
Jóla-apinn



Þema 2 selir:
Jóla-selur




November 27, 2006

Alltaf eitthvað nýtt!

Til þess að halda mér á tánum þá reynir ég alltaf að elta uppi kennslumyndbönd á netinu til að geta tekið þátt og jafnvel hafið vitsmunalegar umræður í partíum. Ég vil helst ekki halda þessum hlutum bara handa sjálfum mér svo mig langaði til þess að gefa ykkur tækifæri að vera "klári vinnufélaginn" í dag. Ég komst nefnilega að því að denim sem er einmitt bómullarefnið sem gallabuxur eru búnar til úr er inniheldur 2,4 kínverja, klór, örfínt sag og plast- og glerflöskurnar sem endurvinnslan neitar að taka á móti. Vinnsluferlið er einhvern veginn þannig að kínverjarnir eru settir í risastórar tromlur þar sem þeir eru afhýddir og þurrkaðir. Það skinn og hár sem fellur frá við þetta ferli er svo sent til pappírsverksmiðja þar sem það er notaði til þess að búa til óbleiktan pappír.

Kínverjabolirnir eru hins vegar fyrst kurlaðir og sendir svo áfram í brennsluofna (1800°) þar sem blandað er við þá efnum sem saman mynda olíukennda leðju sem svo er þvegin með klórblönduðu vatni til þess að losna við svarta litinn. Við þetta er nú blandað sagi auk þess sem vinnsla hefst við að þurrka efnið og rúlla þeim upp í risastórar rúllur. Á þessu stigi er for-denimið mjög líkt pappír en í næsta ferli þá er bráðnum plast- og glerþráðum sprautað með háþrýstitækni ofaná for-denimið. Þar af leiðandi, ef þú kíkir innan í buxurnar eru þær ljósari öðru megin auk þess sem denimið fær það útlit að það sé búið til úr örfínum þráðum.

Nú er denimið tilbúið til niðurskurðar og við tekur ferli þar sem saumað er og hnappað og guð má vita hvað og örugglega vinnustaðahrekkja líka.

Þess má til gamans geta að nú eru einnig komnar á markað "lífrænt ræktaðar gallabuxur". Þá eru starfsmenn sem ekki lengur standa sig í starfi sökum aldurs eða vinnuslysa notaðir í vinnsluna. Í stað klórs er þá notað hár indíána, sem þegar það er sútað gefur af sér efni með svipaða eiginleika og klór. Í stað plast og glerflaska er notaður hvíta roðið sem finna má þeim hluta t.d. lúðu og kola sem vísar niður. Ég er ekki alveg viss um það hvort það sé roð, en það er alla veganna viðbjóðslegt að bragðið. Það sagði mér einhvern tímann fiskifræðingur að bragðið kæmi til vegna kínín-skorts á þeirri hlið sem aldrei vísaði að sólu.

En nóg af vísindum í bili njótið heil.


November 21, 2006


Yfirvaraskegg

Hér á heimilinu er allt í hers höndum. Bókatíðindi komu inn um bréfalúguna fyrir helgi og við höfum ekki náð Breka af klósettinu síðan. Hið endalausa rifrildi um klám eða erótík hefur enga merkingu á okkar heimili þar sem klámblaðið er bókatíðindi. Lýsingar á bókum og smækkaðar myndir af kápum gera Breka greyið brjálaðan. Það eru allar þessar sexý lýsingar á bókum sem fá geirvörturnar á honum til þess að standa út í gegnum lopapeysuna. Hann hefur ekki þorað að líta í bók, ekki eftir slysið með Tár, bros og takkaskór hérna um árið. Hvað er að mogganum að birta úrdrátt úr bókinni og vera ekki með aðvörun á undan? Hann grét samfleytt í fjóra daga og reyndi að skera sig á púls með rifnu viskustykki.

Nú les hann bara eina bók á ári. Bókatíðindi. En svipurinn á Breka þegar hann les þau segir allt. Og það að hann lesi þau inni á klósetti líka. Sveitt efri vörin og hálfglottið (ásamt geirvörtunum) gefa til kynna hversu mikið honum likar bókatíðindi. Svo eru það öskrin sem koma út um lokaðar baðherbergisdyrnar. "Hver er lítil hraðfleyg spennusaga?!" "Ég sé það bara á kápunni hversu frumleg og munúðarfull saga þú ert!" "Talaðu við Breka frænda og segðu honum frá sambandi höfundar og lesanda... ætlarðu með mig í dans á milli skáldskapar og veruleika?!" "Hárfínn húmor! Ughh! Tragísk örlög! Stílbragð! Kalt vatn! Skinns! Hörunds!" "Bráðlifandi og kraftmikil skáldsaga!" Þetta þurfum við að hlusta á um nætur þegar hann heldur að allir sofi.

Við stöndum ráðþrota gagnvart því hvernig við getum læknað hann af þessu. Er hægt að tala um að menn "lendi í bókmenntaumfjöllunarklámi"? Senda hann á Vog og vonast til þess að þeir nái að berja þetta úr honum. Gæti orðið spennandi verkefni fyrir Þórarinn Tyrfingsson. Álfurinn seldur haldandi á litlum bókatíðindum á næsta ári.

November 17, 2006

Formaður Neytendasamtakanna!

Helgin er að rúlla inn með vinnu og tónleikum. Svo það verður kannski lítið um að maður hangi niðrí bæ að dansa. Þó ég hafi kannski lítið dansað frá því að menntaskólaballinu hér fyrir einhverjum árum síðan. Ætli þau séu ekki um það bil 12? Gamall maður. Þá var ég einmitt að dansa við fyrstu kærustu mína. Nýsloppinn úr unglingabólum og nefið allt að losna við unglingabólguna. Lífið brosti við mér og 5 ára planið innihélt lögfræði og drauma um að verða formaður Orators. What is love? hljómaði úr hátölurunum og ég og kærastan sveitt á dansgólfinu. Það eina sem truflaði mig var 6.bekkingurinn sem starði óþægilega mikið á kærustuna mína. Ég spurði hann hvort hann vildi ekki bara taka hana heim. Sem hann og gerði. En ég náði mér þó svo að það hafi örugglega verið átakanlegt að sjá mig hágrátandi á hnjánum á dansgólfinu á Hótel Íslandi þá nóttina.

Ég fyrirgaf henni og komumst við þrjú að ágætis samkomulagi þar sem ég fékk dagana en hún gisti svo hjá honum. Og einhverjum vinum hans held ég líka. Ég fékk það samt aldrei staðfest. En miðað við fjölda karlmanna sem var teiknaður inn á myndina hjá henni í faununni þá mátti skilja ýmislegt. Það sem kom mér kannski á óvart var hversu margir vina minna voru teiknaðir þar. Þeir hafa ekkert viðurkennt og segja að þetta hafi greinilega bara verið eitthvað grín hjá teiknaranum.

En nóg um menntaskólaárin. Bestu ár ævi minnar. Ég þarf að takast á við vandamál dagsins í dag. Þetta dæmi að bróðir minn eigi kærustu er að þvælast fyrir mér. Ég veit að hann saurgar sig ekki með því að stunda kynlíf. Enda tókum við bræður þá ákvörðun að hann myndi bíða þangað til eftir giftingu. En hún aftur á móti sendi mér eitthvað sem kallast bulletin á wasteofspacinu mínu þar sem hún talar um það að stunda kynlíf!! Ætti ég að segja honum frá þessu?


November 15, 2006

Karlaklúbburinn konan

Hvað er málið með þessar nýju tölvur frá hp? Persónulegar tölvur? Auglýsingarnar veittu mér svo mikið öryggi. Mér fannst ég loks laus undan oki vírusa, barnaperra og glæpamanna á netinu. Fullkomið öryggi í svörtum og gráum plastpakka með smekklegri og þægilegri axlatösku. Mér fannst ég hafa himinn höndum tekið upp úr kassanum. Þangað til ég kveikti á henni. Þá komst ég að því hversu persónuleg hún er. Of mikil fyrir mína litlu sál og engin aðgát höfð.

Hún gerir ekkert annað en að móðga mig. Frá fyrsta skjá sem birtist ("til hamingju Einstein! Ég hafði enga trú að þér tækist að kveikja á mér, svo það er kannski von? Ég sagði kannski, auminginn þinn!")og í hvert einasta skipti sem ég opna nýjan glugga eða forrit. Ég er að skrifa þetta blogg uppi í hskla því ég þori ekki að kveikja á nýju tölvunni minni. Ég er að brotna niður. Molna öllu heldur. Ég þoli þetta ekki lengur. Ég reyndi að skila henni en mér var bent á það af sölumanninum að þeir hefðu sagt þetta í auglýsingunni. Tölvan er persónuleg og ég verði bara að lifa með því.

Sem dæmi get ég ekki lengur sett myndir úr myndavélinni inn á hana. Tölvan ræðst á hverja einustu mynd með niðrandi ummælum um fjölskylduna og vinina. Og hæfileika mína til þess að taka myndir. Milljón mömmubrandarar sem eru ekkert annað en skítugar athugasemdir um hana. "Mamma þín tekur það í rassinn", "Mamma þín er helvíti fjölhæf! Bæði feit OG ljót!" og "Mamma þín og tveir rónar inni á klósetti á Langabar í gær! Viltu sjá vídeóið?". Hvaða sadista datt þetta í hug?

Er þetta framtíðin? Hún tekur mig upp með vefmyndavélinni og spilar fyrir mig með ummælum eins og: "Ég er nörd, skjóttu mig.", "Aumkunarverðara en Heiðar á gólfinu í hótelherbergi á Akureyri", "Hengdu þig! Hengdu þig! Hengdu þig!" og "Kokkálaður í beinni! Hvern er hún að sjúga núna?" Mér finnst mér enginn greiði gerður með þessu. Ég er hægt og sígandi að sökkva ofaní þunglyndi. Ætli þetta sé ástæðna fyrir því að Denise Richards henti sinni tölvu út um gluggann? Ég tími ekki að henda minni. Ég á enn eftir 47 afborganir. Tvöhundruð þúsund kall fyrir persónulegar athugasemdir. Niðrandi persónulegar athugasemdir.

Ég óska þess að hp hætti að hafa tölvurnar sínar svona persónulegar. Þær meiða og særa.

November 14, 2006

Stífkrampasprauta

Kærastið er farið heim. Held ég lifi það af. Nú verð ég að koma mér til skSpánar sem fyrst. Sjáum til.

Voelli Saeti(tm) bað mig um að vera með klámfengið blogg. Þetta er handa þér félagi: Margrét Eir. Regína. Hera Björk. Skottastu nú inn á klósett skítugi strákur.

November 11, 2006

November 4, 2006

Eddlevan

Helgin er að koma. Engin vinna um helgina. En ég sé fram á ferðalag á morgun til keflavítis. Bubbi Morthens International hefur að geyma handa mér óvæntan glaðning. Ég veit reyndar ekki hvort mér verður hleypt inn þar sem einhver misskilningur varð á milli mín og öryggisvarða síðast þegar ég leit þar við. Reyndar skil ég ekki hvað málið var þar sem ég spurði einungis hvort það hefði verið með í útboðinu að þau þyrftu að skúra líka. Skúra þau ekki Kringluna? Af hverju þá ekki Bubba Morthens International líka? Eitthvað talað um móðgun við ríkisstarfsmenn og guð má vita hvað. Rólegir félagar.

Voelli Saeti(tm) snýr aftur úr víkingi. Hann er allur víraður eftir að hafa eytt heilli viku í það að elta uppi pólverja uppi á hálendinu. Þar sem hreindýrin hafa öll verið skotin og rjúpuna má ekki veiða þá nýta veiðimenn sér allan þann fjölda pól- og kínverja sem leika lausum hala á austurlandi og elta þá uppi með bambusprikum og berja þá. Mér finnst þetta ómannúðlegt og örlítil villimennska í þessu en þangað til veiða má rjúpuna aftur þá fellst ég svo sem á rök Voella Saeta(tm), "Hvað á ég annað að veiða?"

Talandi um óeðlilega hegðun. Konur og lyktareyðir fyrir klósett? Einhver? Ég er ekki að skilja. Ætti ég að gefa guðnýju svoleiðis í jólagjöf? Ef mig minnir rétt þá var fyrrv. líka haldin sömu fíkn. Eru einhver hormón í þessu sem konur sækja í? Í búðinni hef ég oft séð hóp af kvenkyni fyrir framan þessar vörur en hafði svo sem aldrei spáð almennilega í þetta. Þrátt fyrir að ég hafi að minnsta kosti þrisvar þurft að hringja á sjúkrabíl eftir að liðið hafi yfir kvenkyn sem opnað hafði umbúðirnar af einum lyktarvökvanum, helt því í poka og andað að sér. Ætli ég þurfi að hafa samband við Kompás og láta þá rannsaka þetta? Ég væri tilbúinn að ganga með falda myndavél ef það yrði til að uppræta þessum hættulega leik sem kvenkyn virðist vera að stunda.

Ég var svolítið áhyggjufullur áðan þegar guðný var að þrífa klóstið og ég stend yfir henni reykjandi með kaffibolla og hún á hnjánum með svampinn á lofti og getur ekki hætt að sturta niður. Með nefið upp við plaststykkið með vökvanum hvíslandi í sífellu að búnaðinum: "Hver elskar mamma sín?", "eigum við smá rush hand mömmu?" og "ég vildi að ég gæti gifst þér ferski sítrusilmur". Með því að dangla aðeins í hana og draga hana út af klósettinu og læsa þá lagaðist þetta en nú situr hún katatónísk í sófanum og segir ekki orð. Ef það lagast ekki á morgun þá hef ég samband við sérfræðing.

November 1, 2006

Sigurbogi

Er að vinna í ammæli. Búinn að senda út einhver boðskort. En mig vantar helling af emailum til þess að klára dæmið. Langar einhvern í ammæli? Í fyrsta lagi þá langar mig geðveikt til að bjóða þér en mig vantar bara meilið þitt. Sendu mér línu á tobbik hjá hotmail eða gmail og ég sendi þér boðskort til baka.

October 27, 2006

Of pólitískur?

Við fjölskyldan fórum hringinn að sníkja ókeypis kaffi af frambjóðendum. Ég er hrifinn af þessari sem var tekin af mér hjá bjössa.

October 25, 2006

Ráð handa kærustum

Svo þú ert nýkomin með kærasta. Til hamingju. Ég vildi að ég ætti kærasta. U. u. Kærustu. Ertu kannski enn svolítið óörugg með honum? Það kemur fyrir. Strákar, venjur þeirra og hugsunarháttur getur oft virkað svolítið ruglandi á hitt kynið. En nú þarftu ekki að hafa áhyggjur lengur. Ég er hér til þess að aðstoða þig. Þú ert ekki ein. Áralöng reynsla mín sem lífsleikniþjálfari og áruhreinsari hefur komið mér í náin vinskap við mína bestu kvenkyns skjólstæðinga og margar þeirra hafa einmitt spurt mig út í það hvernig karlmenn virka. Þetta er kannski hræðileg sjálfsauglýsing en ég hef síðastliðin þrjú ár verið að vinna að sjálfshjálparbók handa konum um það hvernig öðlast megi betri skilning á karlmönnum. Það lítur allt út fyrir að hún nái loks að koma út fyrir þessi jól. Mig langaði samt að gefa þér ákveðið forskot á sæluna og birta vel valda punkta úr "Karlmaðurinn - heill heimur tilfinninga", vonandi til þess að opna svolítið fyrir þér heim karlmanna.

Eins og áður sagði þá hef ég verið að vinna að þessari bók í þrjú ár og tekið viðtöl við fleiri hundruð karlmenn frá þúsund löndum. Það sem kom mér kannski mest á óvart er hversu rosalega líkir við erum í hugsunarhætti þrátt fyrir mismunandi uppeldi, trúarbrögð og stéttastöðu. Það eru mikið til sömu hlutir sem veita okkur ánægju eða verða þess valdandi að við brotnum niður og grátum. Þó eru til undantekningar á þessu og kem ég að þeim í lok færslunnar*.

1. Ungdómurinn. (0-12 ára)
Karlmaður lítur oft með miklum söknuði aftur til þess þegar hann var ungabarn. Fyrir honum var það einstakur tími þegar lífið hafði upp á svo margt að bjóða og hann átti enn möguleika á því að geta orðið kona. Það hefur komið fram í vísindalegum rannsóknum sérfræðinga, þá sérstaklega í Djúphreinsunardáleiðslu, að alla karlmenn langaði til þess að vera kvenkyns á fyrstu 14 mánuðum ævinnar. Eftir það hefst erfitt og strangt úrvinnsluferli þar sem karlmaðurinn tekst á við vonbrigðin að hafa ekki orðið kona. Einn viðmælandi höfundar, 49 ára belgi, hafði þetta að segja: "Fyrir mér var þetta eins og dauðadómur. Ég átti erfitt að mynda félagsleg tengsl og fann fyrir mikilli skömm. Ég reyndi að birgja þetta inni og ég fann hvernig gremjan óx innra með mér. Þegar ég loks fékk hjálp hjá félagsráðgjafa í grunnskóla og komst að því að ég var ekki einn þá fann ég fyrir svo miklum létti. Þá hófst uppgjörið við fortíðina, sem reyndar stendur enn."

2. Unglingsárin. (12-17 ára)
Fyrir karlmanninn þá geta unglingsárin oft verið erfið. Þó svo hann hafi náð ákveðnu jafnvægi í sambandi við áfallið úr barnæsku þá eru önnur tilfinningaleg vandamál sem taka við. Það sem við gætum kannski beint sjónum okkar að er mjólkurkirtlaöfund. Aftur kemur það upp að karlmanninum finnst hann svikinn. Hann langar til þess að vera sá sem fæðir ungviði með geirvörtum sínum. Það er á þessu tímabili sem karlmaðurinn ákveður að láta sér vaxa skegg. Honum vex það reyndar ekki náttúrulega og því þarf hann oft að gangast undir langa og erfiða sterameðferð til þess að ná fram skeggvexti. Þar kemur útskýringin á mismunandi rakvélum fyrir konur og karla. Rakvélar karla eru yfirleitt með mjórri rönd fyrir ofan blöðin sem inniheldur sterakrem sem er til þess að halda skeggvextinum við. Það er ekki vitað til þess að þessi aðferð lækni mjólkurkirtlaöfund en hún dregur þó verulega úr henni. Mjólkurkirtlaöfund útskýrir líka óstjórnlega tilhneigingu karlmannsins til þess að stara á brjóst kvenmanna. Það er ekkert kynferðislegt við þetta gláp, þetta er viðurkenndur sjúkdómur og því ættu kvenmenn að leitast við að leyfa þeim að stara örlítið og jafnvel fá aðeins að þreifa á brjóstunum til þess að karlmaðurinn komist nær lækningu.

3. Tveir verða eitt.
Karlmaðurinn lítur á bæði sambönd og hjónaband sem heilagan hlut. Hann lifir fyrir það að komast í það og halda því við. Án kærustu eða eiginkonu þá er karlmaðurinn ekkert. 24 ára tyrkneskur karlmaður segir: "Ég sef ekki á næturnar. Á morgnanna fer ég í sturtu og reyni mitt besta til þess að þrífa mig en mér finnst ég bara skítugri á eftir. Á götu finn ég augu annara á mér, eins og þau viti að ég eigi ekki kærustu. Og af hverju ekki? Það eina sem mig langar í er jafningi sem get hugsað um og elskað. "
Þeir karlmenn sem finna sér jafningja, þó svo karlmaðurinn líti sannanlega ekki á kvenmann sem jafningja, hún er svo miklu, miklu meira fyrir honum, nota oft tækifærið og lifa loksins lífinu. Það gerir karlmaðurinn þó "í gegnum konuna" og safnar þá oft í búið hlutum eins og sparistelli, blómavösum og kertastjökum. Þetta eru þeir hlutir sem veita honum hvað mesta gleði. Af hverju karlmaðurinn lifir þessa drauma "í gegnum konuna" en fer ekki sjálfur út og kaupir þá er enn óráðin gáta. Heyrum hvað 35 ára bandaríkjamaður hafði um málið að segja: "Ég veit ekki. Þetta var bara alltaf ákveðin skömm sem fylgdi þessu. Ákveðið tabú. Ég verð þó að viðurkenna að flestir vinirnir voru að stelast til þess að kaupa sér kannski einn blómavasa eða súpuskál í sparistellið á unglingsárunum. Þetta voru samt hlutir sem maður var ekki að sýna fjölskyldunni eða vinunum, geymdi falið undir rúmi og tók ekki fram nema öll fjölskyldan væri farin að sofa og skoðaði þá undir sænginni. En sælan í hjartanu sem fylgdi því að höndla gripinn og skoða er ólýsanleg."

4. Vinirnir.
Þó karlmaðurinn hangi löngum stundum með vinum sínum þá eiga þeir samt aldrei sama stað í hjarta hans og kvenmaður. Við skulum hafa eitt á kristaltæru, fyrir karlmanni þá er konan allt! Bara sem dæmi þá lagði ég fyrir þá spurninguna "Hver skapaði himin og jörð?" Yfir 93% svarenda sögðu það hafa verið konu. Því einungis kona gæti skapað eitthvað jafn stórfenglegt. Fyrir karlmanni er kona eitthvað sem ber að virða, óttast og tilbiðja. Vinirnir eru einungis uppfyllingarefni í líf karlmannsins og yfirleitt finnur hann sér þá einungis vegna þess að hann telur sig ekki verðan þess að vera í návígi við konuna í lífi hans. Ef hann fengi að ráða myndi hann vera með henni 24 tíma á dag, 7 daga vikunnar, allan ársins hring til dauðadags. Þess vegna skaltu aldrei hræðast það að biðja, nei, segja honum að vera heima með þér í stað þess að fara út með vinunum. Hann verður þér einungis þakklátur.

5. Hvað hræðir karlmann?
Allt. Sérstaklega allar þær tilfinningar sem hann finnur fyrir innra með sér. Þetta er ólgusjór sem hann á erfitt að sigla um.

6. Í hjónaherberginu.
Ég ætla líka að tala um óþægilegu hlutina. Mér er ekkert heilagt! Margar konur hafa talað við mig og þá sérstaklega til þess að kvarta yfir karlmönnum og kynlífi. Hér, stelpur, koma bæði inn líkamlegir og andlegir þættir. Það kom fram við rannsókn í Þýskalandi fyrir mörgum árum síðan að kynlíf er BÆÐI andleg og líkamleg kvöl fyrir karlmenn. Andlegi parturinn lýsir sér þannig að karlmaðurinn vill bara ekki sjá kvenmann nakinn. Honum finnst kvenmaðurinn vera að niðurlægja sig með því að sýna nakinn líkama sinn jafn óverðugu dýri og karlmaðurinn er. Hann á ekki skilið að sjá nakinn kvenmannslíkama og hann sér þá líka, og ýfir upp gömul sár úr barnæsku, allt það sem hann vildi verða. Að auki þá kvelur kynlíf karlmanninn líkamlega. Einn viðmælandi lýsti því svo að það væri líkt og tugum hnífa væri rekið í gegnum mig á sama tíma og annar lýsti brunatilfinningu sem náði frá hvirfli til táa. Karlmaðurinn sér kynlífið einungis sem nokkurs konar hreinsunareld sem hann verður að ganga í gegnum til þess að komast að sínu himnaríki, barneignum.


Ég vona það þetta nái að útskýra aðeins fyrir ykkur karlmenn. Ef ekki þá verðið þið bara að bíða eftir bókinni sem ætti að vera fáanleg eftir nokkrar vikur.


* Undantekningarnar á þessu eru þrjár. Ef þinn kærasti, eiginmaður eða lífsförunautur fellur undir eitt af þessu þremur: Norðmaður, metrósexjúal eða Arnar Gautur, þá geta hvorki ég né bókin hjálpað þér.

October 23, 2006

Tengslanet og valfrelsi

Yndisleg helgi að baki. Það er ekki oft sem ég fer á sýningar en þessa helgina gat ég ómögulega látið framhjá mér fara stórsýninguna í höllinni. Helvítið hann Voelli Saeti(tm) var búinn að nauða í mér í marga mánuði að kíkja á sýninguna "konan". Það var að einhverju leiti forvitni sem að lokum sannfærði mig um að fara en svo var maður að vonast til þess að vel yrði veitt af fríu áfengi til þess að ég og Voelli Saeti(tm) kæmumst kannski á séns.

Það verður að segjast að þessi sýning opnaði heldur betur augu mín fyrir heimi kvenna. Hvort það hafi gert mér gott eða eyðilagt mig skal ósagt látið. Þetta var fyrst og fremst upplifun og á eftir að lifa með mér í minningunni. Og ekki má gleyma þeim tengslanetum sem við höfum komið okkur upp eða naglaísetningunni, ég hafði nú reyndar lesið í bæklingnum að þetta væri naglaásetning en þegar röðin kom að okkur þá komumst við að því að um var að ræða glænýjan hlut frá Hollywood þar sem gömlu neglurnar eru rifnar úr og nýjum plexiglas-nöglum komið fyrir. Ég held ég hafi aldrei grátið jafn mikið áður. En neglurnar á mér hafa aldrei litið betur út! Það var reyndar eitt á sýningunni sem ég fékk eiginlega enga góða útskýringu á, hvað er málið með konur og það að elta hvor aðra uppi með vaxræmur og vaxa hvor aðra? Svo veltust þær um af hlátri og skáluðu í meira rósavíni eða breezer.

Ég fæ kannski aldrei svar við þessu? Ég og Voelli Saeti(tm) reyndum þetta heima hjá honum síðar um kvöldið, eftir að hann hafði spáð fyrir mér í þessum fínu spábollum sem við versluðum okkur á sýningunni, en okkur fannst þetta aðallega bara vont. Þar að auki var ég á tímabili með tvær vaxræmur fastar í hárinu á mér og við þurftum að lokum að klippa þær úr. Spáin var samt ágæt og miðað við þau börn og ferðalög sem Voelli Saeti(tm) sá í bollanum þá ætti ég að liggja flatur undir heimamönnum í öllum þeim utanlandsferðum sem bollinn ætlar mér.

En aftur að sýningunni. Við nýttum okkur ekki einungis tækifærið að komast í ókeypis sýnishorn heldur hlýddum við með athygli á einkar skemmtilega og líflega fyrirlestra. Aldrei hefði mig grunað að konur hefðu svona mikið að segja! Það er kannski bara að ég hafi aldrei hlustað áður? Trommubreik og snerill! Það er gott á sjá hversu konur eru viljugar að ræða sín á milli hversdagslega hluti sem gætu legið á þeim. Ef ég ætti að nefna þá fyrirlestra sem heilluðu mig hvað mest þá myndi ég velja:

"Konur og hvalveiðar - hvað er svona kynþokkafullt við feita karlmenn?"
"Konur og karlmannsstörf - voru það ekki mistök hjá okkur stelpur?"
"Konur eru skart - leiðbeiningar til karlmanna hvernig má lífga upp á aukahlutinn"
"Hvað er málið með hræðilega smekk kvenna í bíómyndum, áfengi og tónlist?"
"Kynverund kvenna - goðsögnin um fullnægingu kvenna afhjúpuð"

Það var gaman líka að sjá hvað þær treystu miklu meira á myndræna framsetningu í stað þess að taka á hættuna á að stelpurnar í salnum misstu áhugann með of mörgum orðum töluðum eða texta úr skjávarpa.

Lágpunktur sýningarinnar var að mínu mati að fleiri keppnir hefði mátt halda. Gott og vel að keppt sé í förðun og naglaásetningu en hvað með gömul og góð áhugamál kvenna eins og matseld, prjónaskap og barneignir? Hvað með að stilla upp þremur óléttum konum og sjá hver þeirra gæti komið barninu út fyrst? Þar er keppni með blóði, svita og tárum. Gætu jafnvel prjónað í leiðinni.

Takk, stelpur, fyrir einstaklega skemmtilega og fræðandi sýningu.

October 20, 2006

Spurning um aðferð, ekki satt?

Þar sem ég er umvafinn útlendingum þá hafa dunið á mér spurningar frá sumum þeirra í sambandi við þetta hvalveiðamál. Eða hvalleiðamál eins og ég vil kalla það! Ha! Ha! Ha!.... æ ... æ æ.

En ég held mér hafi tekist að sannfæra þau um að við séum ekki að ganga af hvalnum dauðum þó við skjótum einhver tvö, þrjú kvikindi. Það virðist sem þau hafi meira út á veiðiaðferðina að setja. Ég geri mitt besta en það virðist fara voðalega mikið í taugarnar á þeim hvernig við drepum hvalinn. Þeim finnst hún ómannúðleg og jaðra við villimennsku. Ég meina... sko er ekki betra að við notum nýju aðferðina sem er að berja þá til dauða með andvana ungbörnum, þar sem það tekur hann u.þ.b. 6 mínútur að deyja heldur en gamla aðferðin þar sem við skutum hann með lifandi ungbörnum og það gat tekið hvalinn allt að tveimur tímum að deyja?
Ha! Ha! Ha!

Nú loks skil ég!

October 18, 2006

Breki Friðmar. Maður, kona en umfram allt meyja

Uppgjör við fortíðina hafa alltaf hjálpað. Þau fá mann til þess að meta meira hvers konar manneskju maður hefur að geyma. Mín leið hefur legið í gegnum marga þrautina, vinnuna en sömuleiðis skemmtunina. Ég get ekki kvartað yfir lífshlaupi mínu. Af sumu er ég reyndar ekki stoltur en eiginkona mín Marsibil Marsibil María hefur verið mér stoð og stytta í því að ná sáttum við þær ákvarðanir sem ég hef tekið og ég veit að framtíðina lít ég bjartari augum eftir fæðingu Elmars Bertels sonar okkar.

En oft hefur það komið fyrir að ég hafi spurt sjálfan mig hvað hafi haft hve mest áhrif á mig. Er eitthvað eitt frekar en annað sem hefur gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag? Ég held ég geti nú loksins fullyrt að það starf sem dýpst áhrif hefur á mig haft er það þegar ég vann sem fluffer, sem á íslensku gæti svo sem verið forleikari, hjá kvikmyndafyrirtæki á skÍtalíu.

Fluffer er fyrst og fremst gefandi starf sem býður upp á ótal möguleika til þess að kynnast skemmtilegu, ófeimnu og fjölbreyttu fólki. Nú er kannski einhver sem spyr sjálfan sig, "hvað í fokkinu er fluffer?" Það væri þá ekki í fyrsta skiptið. Ég held það hafi einmitt verið tengdafaðir minn sem spurði mig að þessu síðast. Hann hafði slysast inn á einhverja síðu á netinu þar sem nafn mitt var skráð sem fluffer í myndinni "Le avventure dei politici omosessuali" sem ég íslenskaði fyrir dvd útgáfuna sem "Ævintýri samkyngirndu stjórnmálagaytoganna". Tók mér smá bessaleyfi við að búa til nýtt orð, en það passaði bara svo vel.

Ég held hann hafi orðið eitthvað hræddur þegar hann sá orðið samkyngirndur þarna inn á milli en ég gat róað og fullvissað hann og vonandi ykkur líka að það er ekkert samkyngirnt við það að vera fluffer. Nú kom það nokkuð oft fyrir að ég þyrfti að hita drengina upp fyrir atriði, stundum fleiri en tvo, stundum fleiri en þrjá, en það gerði ég algjörlega á professional nótum. Vinnan átti hug minn allan og ég man eftir því að Manóló vinur minn hafði eitt sinn eitthvað verið að hneykslast á því að ég gæti unnið við þetta starf og einmitt daginn eftir sat ég á milli tveggja leikara og var að undirbúa þá og hló með sjálfum mér því ég gat engan veginn séð samkyngirndu hliðina á því að koma tveimur olíubornum og vel vöxuðum karlmönnum til áður en þeir komu sér í stellingar fyrir framan myndavélarnar.

Þegar ég er í vinnu þá er ég alltaf 110%. Það var ég líka sem fluffer. Ég veit það fór stundum fyrir brjóstið á Marsibil Marsibil þegar ég var á hnjánum að reyna að vinna fyrir salti í grautinn. Þetta var bara vinna eins og hver önnur! Ég veit að án minnar hjálpar þá hefðu myndavélarnar stoppað og kvikmyndaiðnaðurinn hlotið skaða af. Það er bara þannig að sumir sjá um að farða en aðrir hafa sínum hlutverkum að gegna. Nú er ég ekki að segja að menn og/eða konur þurfi að vera háskólamenntað fólk til þess að mastera fluffið, en það var stundum ósköp snúið að koma mönnum í almennilegt stuð. Ég segi nú ekki á köldum vetrarmorgnum þegar tökur hófust snemma. Ég ætla ekki að lýsa því hér á barnavænu blogginu hvað átti sér stað en sumar þeirra myndu nú örugglega getað kallað fram roða í kinnum hörðustu togarasjómanna sem vaktir hafa tekið í tunnunni og séð hafa ýmislegt.

Enda er ekki mikilvægasti punktur þessarar sögu hvaða vinnu ég gengdi. Heldur miklu frekar hversu taka skuli á krefjandi verkefnum með opnu hugarfari. Ja, svo sakar ekki að reyna að fá smá skemmtun út úr því í leiðinni.

October 16, 2006

Ánægður?

Breytti því handa þér!
Hvert fór áhuginn?

Í september leit þetta allt mjög vel út. Sá fram á að klára skólann og jafnvel sækja dansnámskeið til að eyða tímanum. Nú lítur það allt öðruvísi út. Kem mér ekki til þess að læra og dansáhuginn hvarf með sækóanum. Til útskýringar þá er sækói þriggja metra hátt þríhöfða skrímsli sem hefur andlit og raddir einars arnars, davide byrne og gaursins úr scissor sisters. Brrrrrrr.... Hrollur.

Annars er það helst af sækóa að frétta að ég ligg helst undir grun að vera hann. Lögreglu beggja vegna hafs vil ég þakka viðleitni. Hún er engin og er það örlítið ofar mínum væntingum.

Ef einhver hefur eitthvað hresst að segja þá væri það velkomið.

October 2, 2006

ululate

ég skal lofa að vera duglegari þegar ég hef losað sækóinn af kærustunni. En á meðan er ég svolítið upptekinn við að aðstoða hana.

September 26, 2006

Tækifæri

Þá er ferðinni til skSpánar lokið. Var skíthræddur á tímabili við það að fara til annars lands en skÍtalíu en þetta gekk bara ágætlega. Tengdafjölskyldunni mútað með laxi og einlægu Baby Spice brosi. Nú hefst alvaran á nýjan leik. En það er svo sem engin alvara, ég er bara í skóla!

En skóli er vinna og allt það. Ég held að mín vinna þessa önnina ætti að vera sú að efla félagsandann í hugvísindadeild. Kannski megrunarklúbb. Bollan sem svitnar mestu fitunni fær farandstyttuna Íþöku til varðveislu í eitt ár. Ég nenni ekki að vakta þetta sjálfur en er viss um að það sé einhver æstur leikfimikennaranemi á Laugavatni sem er til í að taka þetta að sér í sjálfboðavinnu. Hljómar vel á Cv-inu. Hjá honum ekki mér. Mér dettur ekki í hug að setja, "2006 - Fékk leikfimikennaranema frá Laugavatni til að fylgjast með þyngdartapi hugvísindarnema", á cv-ið mitt. Og þó? Hmmmm... Þetta hljómar svolítið sexí.

Ætli það sé leikfimikennaraneminn eða möguleikinn á því að geta öskrað: "Láttu þessa stjörnurúllu frá þér! Þú veist þetta fer beint í mjaðmirnar á þér!"? Það fer um mig unaðshrollur. En ég veit ekki af hverju.

Ég vil nýta tækifærið núna og þakka öllum sem hafa sagt mér hversu falleg kærasta mín er. Ég veit að mitt litla hjarta hefði ekki getað tekið því að einhver góður vinur hefði hallað sér upp að mér og hvíslað að mér: "Tobbi. Kærastan þín er forljót." Ég hefði brotnað niður og grátið í heila viku. Væri einhver það góður að benda manni á það? Þetta er bara svipuð ettiketta og með stelpur og kjóla. Þér bara dettur ekki í hug að segja um hvorki kjólinn né kærustuna: "Lítur hræðilega út!" Ekki nema maður sé í svipaðri hugarleikfimi og fyrrverandi verkfræði- og húsasmíðaneminn Voelli Saeti(tm) sem hefur sett sér það takmarka að hafa komið sér upp áunninni siðblindu fyrir ágústlok 2007. 11 ára vinnu ætti þá að vera lokið sem hófst í útskriftarferð árið 1996 með setningunni: "Magga mín, það hlýtur að vera hræðilegt hlutskipti fyrir unglingstúlku eins og þig að verða bæði tileygð og með misstór brjóst! Hefurðu hugleitt lýtaaðgerð eða sjálfsmorð?" Fyrsta og eina skiptið sem ég hef séð einhvern æla af reiði. Og það var ekki einu sinni stelpan sjálf heldur félagsráðgjafinn í skólanum. Voelli Saeti(tm) sat inni á skrifstofu hjá honum eftir að hafa verið kallaður á teppið og starði á hann með undrunarsvip þegar félagsráðgjafinn heimtaði frá honum afsökunarbeiðni til handa stúlkunni og sagði í sífellu "Hvað? Hvað? Hvað?"

Stúlkan sjálf náði sér í einhvers konar sígræti og þurfti ekki nema örlítinn hávaða tli þess að hún skrúfaði frá. Sem útskýrir af hverju Voelli Saeti(tm) hringdi til hennar að minnsta kosti þrisvar á dag og æpti "Waaaaaaaaaaaaaazzzzzzzuuuuuuuuuuuuupppppp!!" í símann. Þó það hljómi illa þá er það samt betra en þegar við vorum saman í Legolandi nokkrum árum síðar og Voelli Saeti(tm), rekandi augun í dverg sem gekk þar um, kallar á eftir honum "Nanó! Hey Míkró! Fann hús handa þér! Þarft ekki hjálp við að ná upp í efstu hillurnar hérna, Nanó!"

September 8, 2006

Hann er ekki pabbi minn!!!

Þá er það skSpánn á morgun. Þetta gengur ekki jafnvel og skÍtalía. Reyni að hugsa upp eitthvað ógeðslega fyndið. Ha ha ha! Get ekki beðið eftir því maður! Vonandi verður það jafn fyndið og að heyra borgarfulltrúa rífast yfir strætó. Ég held að það hafi engum komið á óvart sem séð hefur alla tómu strætóana keyra um göturnar að hann hafi verið rekinn með tapi. En ef þú keyrir út úr bílskúrnum í breiðholtinu og beint niður í bílastæðakjallarann undir ráðhúsinu þá sérðu lítið af strætó. Þetta hefst upp úr því að það kosti 250 kall í viðbjóðinn.

Nenni ekki að rífast um þetta. Ekki gert annað en að kveðja útlendinga þessar vikurnar. Guðný spurði líkt og Voelli Saeti(tm): "Hvað er málið með þig og útlendinga?" Reyndar í Voella Saeta(tm) dæminu má skipta út orðinu útlendingar fyrir feitar stelpur. Ég held reyndar að málið með mig og útlendinga sé hversu rosalega opinn og meðvitaður ég er um menningu þeirra. Í gær hitti ég til dæmis tvo þjóðverja, annar þeirra er á leið heim en hinn nýkominn til landsins, og spurði hinn nýlenta hvort hann hefði, verandi þjóðverji, þurft að standa upp fyrir framan allan bekkinn í fyrsta tíma og biðjast afsökunar á seinni heimstyrjöldinni. Hann sagði það ekki hafa þurft í þetta skipti þar sem helmingurinn af bekknum væru þjóðverjar. Ég sagði honum að ég hefði heyrt að því að í upphafi hafi fjórðungur bekksins verið pólverjar en það hefði greinilega breyst eitthvað.

Svona eignast maður útlenska vini.

September 6, 2006

Sitji guðs englar.

Ég er alltaf á leiðinni að byrja aftur. Gengur eitthvað illa. Nú hafa mér borist fjöldamargar umsóknir um miðann og ég vildi bara ítreka það að hann verður seldur á kostnaðarverði. Voelli Saeti (tm) fylgir með í kaupæti. Ég fann mynd af honum um daginn en hann var eitthvað ósáttur að ég myndi nota hana. En ég er ekki hræddur við Voella Saeta(tm) og hans guðdómlegu spékoppa. Andlitið er reyndar falið til að vernda hann frá ofsóknum vergjarnra kvenna: