August 5, 2004

Húðflúr

Ég er orðinn veikur í nýtt húðflúr. Mig bara vantar eitthvað til að setja á mig. Gengur ekkert hjá mér að finna nýja mynd. Svaf með pottlok á mér um daginn til þess að blekkja líkamann en það gekk ekki og nú er ég tattúveikur. Var eiginlega búinn að ákveða að tattúvera á mig samvaxnar augarbrúnir þegar ég fattaði hversu asnalegt það væri að raka samvöxnu augabrúnina af til þess eins að láta tattúvera nýja á. Stundum á maður bara að vera ó neitúreil. Svo fékk ég að því veður að fyrirsögnin á næsta Vogue yrði: "Uni-brow is the new black." Svo, byrjið að safna krakkar.

Mig vantar hugmyndir af tattúi. Verður að vera svart eða dökkblátt. Ekki meira en 256 litir í því og ég það þýðir ekki að senda mér myndir af indíána vafinn í úlfskinn. Einn á líkama er nóg. Ef einhver er með link á síðu með svona tattúdrasli eða hefur óstjórnlega þörf til að senda mér brjóstamyndir þá er kommentakerfið alveg að virka.

Þemað á nýja tattúinu ætti helst að vera "Menntun og hugsjónir" en ég er alveg opinn fyrir einhverju öðru.

No comments:

Post a Comment