Líður að lokum
Komst að því í dag að ég er víst skítugur strákur með blett í buxunum. Veit ekki hvað mér á að finnast um það. Er það ekki alveg jafn gott og hvað annað?
Hann er skí-tugur stá-hákur,
með blehett í buxunum.
Horfir á, naktar stelpur á netinu
Borðar ekki, freakin´ soya og grænmeti.
Djöfull er ég góður að semja maður! Bað bróður minn að semja um mig lag en ég hef ekkert heyrt af því ennþá. Ég ætti kannski að reyna að koma þeim tilfinningum sem ég upplifi í búðinni í ljóðaform? Reynum það.
Dagdraumar +1
Yfir búðinnni minni
safnast skýin saman og
ræða innkaupin.
Í hillunum er hraðbrautir viðskiptanna
Í bílunum bíða mennirnir,
Þeir eru svangir.
No comments:
Post a Comment