August 31, 2005

August 29, 2005

Hvað á maður að gera af sér?

Mánuður eftir af skÍtalíu. Þessi vika nokkurn veginn ákveðin þar sem Guðný, amma og tvær frænkur eru að koma í heimsókn. Fullt hús. Svo ætla ég að reyna að koma mér í heimsókn til gömlu skítölsku fjölskyldunnar áður en ég fer heim og líta í heimsókn til frakklands í leiðinni. Koma því fyrir. Einhvern veginn.

Annars er lítið að frétta. Sá mitt fyrsta skÍtalska brúðkaup um helgina og nú á ég bara eftir að sjá jarðaför til þess að loka kirkjuhringnum. Skírn, gifting, jarðaför. Það virðist samt ekki ætla að gerast alveg strax. Veit ekki um neinn skÍtala sem ég þekki sem ætlar sér að drepast næsta mánuðinn. En maður veit aldrei.

Fannst ég samt ekki nógu vel klæddur fyrir kirkjuna. Valerío vinur minn lánaði mér hvíta skyrtu(ég ætlaði mér ekki í brúðkaupið, mér var ekki boðið) svo ég leit allt í lagi að ofan... en ég var í stuttbuxunum enn svo ég leit út eins og 6 ára strákur í stuttbuxum og spariskyrtu. Það eina sem vantaði var slaufa og marglita derhúfa með hreyfli á toppnum. Þá hefði ég verið kúl. Kúl es fökk.
Ég keypti mér g-streng..

.. sem ég lofa að nota aldrei sjálfur. Lofa.

August 24, 2005

Á leiðinni heim...

allir gestir farnir svo mér fannst best að koma mér bara heim sjálfur. Flogið heim í lok sept.

Gaman gaman.

August 16, 2005

Meiri heimsókn

Jæja. Þá er komið að meiri heimsóknum. Ein ensk stúlka og ein ítölsk. Sú ítalska stoppar reyndar bara í einn dag en hin aðeins lengur. Það er bara að reyna að finna stað fyrir alla að sofa í nótt. Fullt hús gesta. Reyni að elda dósamat handa þeim í kvöld og hella áfengi í andlitið á þeim.

Annars er það að frétta að hér er skítakuldi. 26-28 stig og nokkrir dropar hafa fallið. Ég kenni gestunum um. Þetta er reyndar fínt því í fyrsta skipti er ég ekki að svitna eins og tíu ára krakki í næturvinnu í Bankok. Þó ég hafi eiginlega aldrei angað af hvítlauk.

Farinn að sækja nýjasta gestinn.

August 11, 2005

Heimsókn

Rauðhærður íslendingur og baunakærastann hans á leiðinni. Kannski ég verði ekki mikið að skrifa inn hérna á meðan. Reyni hvað ég get. Kominn með myndavél. Á maður að setja inn myndir? Veit ekki? Hræddur við að auglýsa eigin kynþokka.

August 10, 2005

Tilraun

Völundur hin svarta sál benti mér á að það væri kominn tími til að breyta örlítið um stíl. Hann benti mér á nokkrar síður til þess að hjálpa mér og ég ætla að slá til. Hinn nýi breytti og bætti tobbalicious:

OMG!!!!!!! Alveg bara að gera gegt góða hluti!!!

oj hvað ég er pirrandi "bloggari " ef ég má kalla mig það:) málið er bara það að mér finnst ég minnskt kúl bloggari! mér finnst ég mikið meira cool þegar ég er bara tjillin´heima hjá auðunum kannski með fjarstýringuna í annari og alexander í hinni og er að pirra stelpurnar með því að skipta um stöð endalaust!!!! hahahahaha u creysí bunch og ho´s.... já og þegar ég er að segja frá þegarég var fyndin daginn áður!!! jess!!!! en já fín helgi að baki og fín vika framundann! samt ekki sko með vikuna framundan bara reyna að vera geeeðveikt hress! var sem sagt að koma heiman frá auðunum þar sem er náttla bara endalaust tjill og homies hangin´ around í stofunni eða í sóðanum úti og allskonar!!! jej jej jej! jajajajajajaajaj sjáiði ég hef ekkert að segja!!!!! ég er bara að bulla herna!!!!! shit!!!!!!! kúkur!!!!! piss í bala og fuglaskítur á glugga!!!!! hver kannast ekki við það???? hahahaahh og eiga ekki rúðupisss og þurfa að skafa hann af með nefinu!!!! hhahahahahaha shit hvað mer fannst þetta fyndið hahahaah skafa hann af með nefinu!!!! hahahahaha ýmindið ykkur það shit það er fucked!!!!! já tinna að koma heim!! fór að hugsa um það þegar ég minnist á rúður! æ af því hún er svo glær fattiði!! hihihihi heyriði eg er farin að bulla geeeeeeðveikt bæ góða nótt og sofiði rótt svo lengi sem hjartað slæt ítt og ótt! frábær nótt og gleðilega brókarsótt !!!! AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAHHHHHHHHAAAAAAHHHHAAAAAAHHHAAAAAAAAAA

Strákarnir eru á víð og dreif um landsbyggðina að pirra menn og konur og láta illum látum, mjöög sáttur við það en við hin sem í bænum erum ætlum að drulla upp á bak í kveld og annaðkveld..
Biggi.,. sorry en Völli er búinn að lofa rúst-partý-i báða daganna þannig að ... ÆÆÆiii.. kalllinn !!
Jæja.. farinn að halda áfram að trunta í mig blöndu og öðrum áfengum viðbjóði, sjáumst hjá "Völla" a.k.a Völlastöðum þessa helgina ;)

jæja dagurinn í dag er búin að vera ágætur! vaknaði kl níu, fór í vinnuna, var þar til hálf 7, fór heim sofnaði , og vaknaði kl hálf tíu!! já vá hvað ég get sofið eitthvað mikið! hahahhahahahhahhahahhha ég er að djóka!!!!!! geðveikt að blogga geðveikt eins og ég se búin að vera að blogga stanslaust í 3 ár hahahhahahahah! varð bara að segja þetta!

Sæl veriði, var að pósta á aurinn svona líka ómerkilegu bloggi um það að ég sé í bænum. Kappinn er að fara til Portúgal í lok ágúst og hef því tekið þá afdrifaríku ákvörðun að vera bara í byen þessa verslunarmanna helgina og tralla bara og eitthvað Scheize ..

Gunni kallinn fór norður á Akureyri núna um helgina ásamt vinum sínum og þar tóku þeir nokkuð nett extreme BBQ.

Ég fékk svo nokkuð hressilegt símtal eitt kvöldið frá Gaua kallinum. Hann var að hafa samband við mig til að láta mig vita (vara mig við) að hann og strákarnir voru á leið norður til mín. Það var víst þannig að það var ófært til Eyja (SUPRISE!!) og því var það bara ákveðið að skella sér norður í ruglið. Ég fór inn á Akureyri á djammið á sunnudagskvöldið, kíkti á brekkusöng og djöfull var það töff. Það var svo alvarlega mikið af fólki þarna að ég átti varla til orð. Ég ætlaði að kíkja þangað og finna Gaua og co sem þarna voru en það var bara ekki séns, allt stappað og stemmingin alveg vel góð. Þetta endaði svo á öflugri flugeldasýningu og þá var röltið tekið á lífið. Seinna um kvöldið hringdi ég svo í þessa ágætu vini mína sem þarna voru en þá voru víst allir dauðir... he he he

Ef þetta er ekki eitt það hellaðasta sem ég hef séð lengi, hversu heimskir eru kanar ? Hvað gerir fólk ekki fyrir 15 sek af "fame"... shit Þessi gaur sem gerði þetta var tekinn og mun núna vera kærður alveg til zúlu og aftur heim.

Steini gerði sér lítið fyrir og verslaði einn BMW fyrir stuttu og var hann að klára hann og skella inn myndum, mæli með því að kíkja á bílinn sem ég er að fara að prófa eftir... hmmm... 14 daga.
Steini minn, núna er pressa á þér að standa þig á meðan þessi merki titill er í þínum blogg-höndum.

úff það er stutt í öll brjáluðu sumardjömmin okkar bjassí... hlakka til aðsjá þig.. biz...

Það er alveg kominn tími á það að skipta út hlekk vikunnar og það er ekki ómerkilegur maður sem er að fara að taka við þessum margfræga titli en Völli "Verzló" sem einnig gengur undir nöfnum eins og "sá skorni", "buffið", "kjetið", "fallegi maðurinn" og svo auðvitað "Peter Griffin". Það eru 98,7% líkur á því að ég sé að fara út til hans núna 20. til 28 ágúst. Fyrir ykkur sem ekkert vita, þá er Völli litli úti í .dk að fara í skóla og hlaða í litlu systir Arnþórs.. HA HA HA

Okay svo verð ég að monta mig aðeins... á fimmtudaginn síðasta þurfti ég að vera með oral presentation í ensku já ÉG!!!! Þurfti að breyta position paper sem ég skrifaði fyrr á önninni í media, semsagt í auglýsingu eða eitthvað þannig og kynna það svo. Mín skoðun var að líknardráp ætti að vera löglegt og bjó ég til mjög fallegan bækling með hjálp Báru Kláru... okay svo fer ég þarna og er að deyja úr stressi því alltaf þegar ég verð óörugg hérna finnst mér ég ekki kunna að tala ensku og svo byrja ég bara að tala og tala og klára þetta bara með nokkrum sóma var mér sagt og svo fékk ég einkunnina i gær og ég fékk 53,4% eða 5,3..... hæðsta einkunnin var 95% !!! ha? sko mína..... hehe

Annars er bara allt gott að frétta, fór með Emil og Sjöfn í ungbarnasund um daginn og vá hvað ég var stolt af litla frænda sem að grét ekkert (bara svolítið hneykslaður stundum) En þetta var án efa það sætasta sem að ég hef séð. Hann er algjört gull ég sakna hans alltaf svo ótrúlaga mikið þegar ég fer frá honum :-/
Svo er hann Arnar Máni að koma í heimsókn núna en hann er orðinn rúmlega fimm kíló mánaðargamall :) algjört rassgat ! Sé hann bara allt of sjaldan.
En nú er ég farin að taka til og síðan knúsa og kyssa Arnar Mána minn þangað til hann verður
pirraður á mér :)

Nú er ég líka búin að bóka farið út og ég fer 27 ágúst, hlakka bara rosalega til að fara frá þessu skeri þar sem ég er svo komin með nóg. Það verður líka fínt fyrir lansbúana að fá smá frí frá vitleysunni í mér :) Veit allaveganna um nokkra aðila sem að geta ekki beðið...þið vitið hverjir það eru ! Tinna litla krútt og Ranald ætla að leyfa mér að gista í alveg fyrst og ég veit að það verður bara mjög notalegt, síðan erum við mamma að skipuleggja ferð til Cran Canari yfir jólin..vona að það gangi allt saman upp, langar svo að eyða jólunum annarsstaðar en heima á Íslandi. Vá þetta hljómar eins og ég hati landið en ég geri það alls ekki, æ þið fattið þegar maður fær nóg.

Ég er að fara í klipp og stríp til Systu í fyrramálið.. það veður geðveikt! því eins og vanalega þegar ég kem heim frá Danmörku þá er ég með ógeðslegt hár. Með rót niður á hæla og lit sem eiginlega er farinn að fara úr.

var bara að koma úr ræktinni þar sem ég gjörsamlega missti mig í lyftingum á neðri hluta líkamans og ég er totally búin, like it's like totally awesome!! En svo er það partý hjá Sjöbbu partýbombu á laugardaginn í tilefni af heimkomu Tinnslu skvísu!! : ) Ég hlakka ekkert smá til, enda er ég sjúk í djamm þessa dagana!! Jessssssssssss.....

OMG!!!!!! sjáiði HÉR!!!!


Ohhh ég gæti skoðað þessar myndir endalaust... en eftir mikinn umhugsuð og vangaveltur þá er þessu uppáhalds mín.....

Frétti allavega að ég hefði misst af útileigu ársisns í Birkilhlíð þar sem var saman komið fullt fullt af fólki í stekjandi hita og allt brjál... :( ..ég er ömó að beila svona...

Gara gó gara gó

Hversu vandræðalegt er það að vera stödd í miðju barnaafmæli með öllum bræðrum og systrum mömmu, mökum þeirra og barnaflotanum.....og það sem notað er til að brjóta vandræðalegu þögnina sem myndaðist eina stundina er spurningin: Jæja tobbalicious minn, svo þú ert bara skilinn? Shit, langaði að gerast sófi í stíl við sófasettið eða hoppa út um gluggann!!!!!!

Fórum ég og Dóri á Emilíönu Torriní í gær og hún var æði.. ohh mesta dúlla í heimi með engalröddina sína fallegu... það var líka rosa rómó stemning á Nasa, allir voða að halda utan um þann sem þau voru með.. voðalega ást í loftinu...!

...frétt dagsins í dag hja mér er það að ég og minn kæri D-man ætlum að skella okkur til udlande... jeijjjj... við höfum ákveðið að fara til Florida, Miami daginn eftir seinna prófið mitt!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! OMG! ég get ekki beðið! Fáum okkur bíl og alles og ég bara veit ekki hvað og hvaaaaaaaaað!

Og þarna erum við voða södd efitr dýrindismat, og ég er svo feit í andlitinu á þessari mynd að ég er ekki búin að tala um annað síðan ég sá hana!!! Í alvöru ég bíð efitr að hausinn detti af úr hlussuheitum á myndinni..... ojjj

mig nottla líka bara að hitta ykkur elskurnar fögru

Í staðinn kemur bara hann Lilli-Tilli-Sprellimann, og bumban verður forever-gone!

og ég verð nú bara að segja að það var ÝKT gaman!

Við lentum akkúrat á eftir fyrstu 4 vörubílunum á leiðinni útúr bænum, og keyrðum á 30 km hraða í svona 10 mínútur, en þá kom löggan með blikkandi ljós og læti, og stoppaði þá og hleypti okkur frammúr, þannig að við sluppum bara vel sko. Þetta var samt soldið spennó, og ég fékk einhvern svona "woo weee, djöfull er löggan kúl"

en ég og Ruz vorum bara high-on-life skiljiði

En ég verð að segja þessa sögu, djís, tékk this out!

Svo var mín bara komin út í sólbað kl 10 í morgun! Sat og steikti mig, gersamlega, djöfull var mér heitt!!

Jæja, þá er ég algerlega búin að jafna mig á pirrings-geðveikinni á laugardaginn, og er bara nokkuð hress.

Frú Guðfinna Odds átti afmæli í gær, varð alveg 22 ára!!

hahahah en viti menn Óli er að vinna þarna á pool stofu og nei nei skorar á mig með því að segja "þorir eitthver?" og ég alveg já en ég er ekkkert nema pappakassi í þessu sporti...

ég kom úr vinnuni áðan sól og æði úti enþá áhvað að fá mér eitt stk af köldum Tule þar sem að ég átti hann alveg skilið og nei nei viti menn ég rotast og var að vakna..

nei bara að rugla eitthvað ég fíla þetta golf sull alveg en þegar að þeir byrja að ræða þetta guð minn góður ég gæti dáið...

verðum að vinna þarna saman í allt sumar alveg eitur hressir ásamt honum Óla Þór úr HK sem er bara mjög gott mál og mikið djöfull verður þetta sweet sumar...

en já ég er farinn að snæða eitthvað hollt gums sem mamma var að malla saman á skál en þetta er eitthvað kál dót og VATN sem er bara minn lífsstíll þessa dagana enda er ég að taka six-pack-ið úr fríi og ætla að setja það í fulla vinnu næsta vetur og læti... 0

bara að vera svona lala töff eftir sumarið... en já matur er kominn ég er farinn bæbæ skrifa aftur bráðum það kemur ekki aftur svona löng pása prom-is-a-prom...

Ég var að koma heim úr saumaklúbbi okkar kellinga... Ég er alllt of södd... allskonar allskonar góðgæti var á borðum og var borðað aðeins of mikið (og þá tala ég örugglega fyrir alla), og var Regína ofurmamma to be búin að baka þessa þvílíku marensbombusúkkulaðitertu! NAAAAMMMMM !

Get ekki beðið eftir að sjá okkur allar eftir 10 ár í saumo... Mjög líklega flest allar með barn/börn uppá arminn og vonandi kallana líka ;-)

Allaveganna við finnum bara eitthvað krúttlegt tjaldstæði, grillum, drekkum og höfum það næs.

bæææææææææææææææ stelpur
þið eruð sætar
og skemmtilegar
og geeeðveikt fyndnar
og ég sakna þín auður ósk
og öfunda þig kata að vera að fara til fokking miami
og hlakka mest til að sjá þig tinna
og þið eruð bestastar..
..allar!! :o)

August 9, 2005

Sem betur fer...

... þá finnst mér lífið æðislegt. Stundum of æðislegt. Af hverju? Jú það lumar nefnilega á skemmtilegum sögum sem fær mann til þess að njóta þess að vera til og það virðist einhvern veginn vera blómailmur af öllu sem er nálægt þér. Lítil börn virka ekki lengur sem slefandi litlir skítar með hor og meira að segja betlarinn fyrir utan hefur einhvern kynþokkafullann tón í röddinni þegar hann heimtar af þér einhverja aura. Sólin skín en samt ekki of skært og hitinn er fullkominn, ekki of heitt né kalt.

Hljómar of gott til að vera satt? Nei, látið ekki svona! Maður verður að njóta þess að vera til og það er einmitt það sem ég er að gera þessa dagana. Það er allt svo miklu bjartara þessa dagana. "Er hann orðinn geðveikur?" Nei aldeilis ekki krakkar mínir. Ástæða þess að ég skrifa þessar línur er sú að fyrir einhverjum dögum var ég að væla yfir ákveðinni stúlku sem ég var svolítið hrifinn af sem bjó hér í borginni en það kom svo í ljós að hún átti kærasta. Nú á hún ekki kærastann lengur og hún sendir mér skilaboð á hverjum degi. Hún hefur jafnvel gengið svo langt að viðurkenna það fyrir mér að hún sé hrifin af mér. Gleði gleði gleði!!!!

Stúlkan er nýflutt úr Bologna-borg og býr í einungis fimmtánhundruð kílómetra fjarlægð frá heimili mínu. Í annað land. Næstu tvö árin. Ég myndi bjóða henni út...

Tímasetning er allt. Þannig lærði ég að tímasetja punktinn þegar ég byrjaði að hata lífið.

August 3, 2005

Fyrirlitning. Kven Fyrirlitning.

Langt síðan. Ég verð eiginlega að reyna að fyrirlíta þær aðeins. Stelpur. Þær liggja bara svo vel við höggi. Byrjum á teyknymind: Hver er munurinn?

Nei látum ekki svona. Þær eru fínar... í uppvaskið!!! Ha! Ha! Ha! I kill myself.

Það er margt sem stelpur hafa komið með sem hefur gert lífið betra og þægilegra t.d. grindarbotnsæfingar, jafnrétti, halda uppi vörnum fyrir rauðhærða, "já, þú meinar.", snúa körlum til samkyngirndar, séð og heyrt, millistjórnendur... og listinn heldur áfram. Ég get meilað hann ef einhver vill.

Of heitt til að halda áfram. En ég held samt áfram í kvöld í grillveislunni. Þar verða háskólamenntaðar stúlkur (ég veit. ég veit. það er eitthvað rangt við þessa setningu. en þeim tókst að kenna öpum táknmál.) og það er ekkert skemmtilegra en að rakka svoleiðis aðeins niður. Ætla að spyrja þær hvort stelpur taki öðruvísi próf en strákar í háskóla. Tengja saman myndir. Svo er alltaf klassískt að enda kvöldið á setningunni: "Hey! Þið eruð með píku, getið þið þá ekki vaskað upp?"

Víni verður skvett.
teyknymind

August 2, 2005

Fjórða skiptið...

Hér er góð saga. Þannig var að í febrúar hitti strákur stelpu. Hún mjög sæt og skemmtileg og hann... ekki alveg sætur en á það kannski einstaka sinnum til að vera skemmtilegur. Strákur lætur stelpu hafa símanúmerið sitt. Stelpa týnir símanúmeri. Gerist og ekkert við því að gera. Strákur gerir einhverjar tilraunir til þess að hafa uppi á stelpu aftur en það gengur frekar illa þangað til í júlí. Þau hittast.

Kemur í ljós að hún er að fara frá borginni og kemur ekki aftur. Hljóðlátt öskur og svo ekki meir. Nýta sér þann litla tíma sem eftir er. Af hverju ekki? Strákur og stelpa fara út nokkrum sinnum og fara saman í partý og svoleiðis. Stelpa virðist ekki mikið vilja gera en er dugleg að segja hluti eins og "verst að við hefðum ekki getað hist fyrr," "við eigum svo vel saman og ég þarf að fara," "það er svo gaman að hanga með þér." Strákur er svo sem ekkert að taka það alvarlega. Hún er hvort sem er að fara.

Um helgina gerist hún svo ákveðnari og kannski var það áfengið í kveðjuveislu hennar eða hvað veit strákur þá hugsar hann alla vegna með sér "andskotinn hafi það! Er hún að reyna við mig? Það er kannski möguleiki eftir allt saman?" Vegna ölvunnar hennar ákveður strákur samt að láta hana vera. Kannski góður kannski hræddur við eigin skugga. Svo líður laugardagur með skilaboðum og þau fara út að borða, sunnudagur mjög svipaður og hún býður honum með á ströndina á mánudegi. Strákur er sáttur. Skilur samt ekki alveg í stúlkunni að vilja hanga svona mikið með honum. Edrú þá dregur hún sig mjög í hlé.

Svo krakkarnir fara saman á ströndina og skemmta sér í sólinni. Strákurinn tekur samt eftir því að hún hagar sér einkennilega. Heldur sér alltaf í góðri fjarlægð sem hafði ekki gerst áður og.. allt mjög eins og þeir hefðu aldrei hist áður. Strákur hugsar með sér allt í lagi, það er pláss fyrir eina vinkonuna enn. Þegar dagur er hér um bil að kvöldi kominn segir stúlka að vinur hennar sem á heima í þessari borg ætli að líta við og fara með þeim að fá sér einn bjór áður en þau taka lestina aftur heim.

Nýi strákurinn mætir á ströndina og þau tvö fara og fá sér sundsprett. Tveimur mínútum síðar kemur stúlkan aftur úr sjónum og segir við strákinn: "Hérna... við tvö eigum eiginlega smá sögu saman.. hérna.. ég ætla að gista hjá honum.. er það allt í lagi þín vegna að þú takir lestina einn heim?"

Strákur hugsar með sér að það sé ótrúlegt að þetta sé í fjórða skiptið sem stúlka bíður í nokkrar vikur að segja að hún eigi "kærasta". Strákur tekur lest einn heim. Kannski ætti hann ekki að vera að reyna við stelpur ef þetta virðist ætla að enda alltaf á þennan veg?

Þeir segja að þú fáir hálsríg af því þegar þú vilt segja já og hreyfa hausinn þá upp og niður en skiptir um skoðun á síðustu stundu og segir nei og hreyfir hausinn til hliðanna. Næst þegar strákurinn spyr stúlku hvort hún eigi kærasta þá ætlar hann að fylgjast með því hvort stúlkan fái hálsríg eftir að hafa svarað. Lesa líkamstjáningu.