Ráð handa kærustumSvo þú ert nýkomin með kærasta. Til hamingju. Ég vildi að ég ætti kærasta. U. u. Kærustu. Ertu kannski enn svolítið óörugg með honum? Það kemur fyrir. Strákar, venjur þeirra og hugsunarháttur getur oft virkað svolítið ruglandi á hitt kynið. En nú þarftu ekki að hafa áhyggjur lengur. Ég er hér til þess að aðstoða þig. Þú ert ekki ein. Áralöng reynsla mín sem lífsleikniþjálfari og áruhreinsari hefur komið mér í náin vinskap við mína bestu kvenkyns skjólstæðinga og margar þeirra hafa einmitt spurt mig út í það hvernig karlmenn virka. Þetta er kannski hræðileg sjálfsauglýsing en ég hef síðastliðin þrjú ár verið að vinna að sjálfshjálparbók handa konum um það hvernig öðlast megi betri skilning á karlmönnum. Það lítur allt út fyrir að hún nái loks að koma út fyrir þessi jól. Mig langaði samt að gefa þér ákveðið forskot á sæluna og birta vel valda punkta úr "Karlmaðurinn - heill heimur tilfinninga", vonandi til þess að opna svolítið fyrir þér heim karlmanna.
Eins og áður sagði þá hef ég verið að vinna að þessari bók í þrjú ár og tekið viðtöl við fleiri hundruð karlmenn frá þúsund löndum. Það sem kom mér kannski mest á óvart er hversu rosalega líkir við erum í hugsunarhætti þrátt fyrir mismunandi uppeldi, trúarbrögð og stéttastöðu. Það eru mikið til sömu hlutir sem veita okkur ánægju eða verða þess valdandi að við brotnum niður og grátum. Þó eru til undantekningar á þessu og kem ég að þeim í lok færslunnar*.
1. Ungdómurinn. (0-12 ára)
Karlmaður lítur oft með miklum söknuði aftur til þess þegar hann var ungabarn. Fyrir honum var það einstakur tími þegar lífið hafði upp á svo margt að bjóða og hann átti enn möguleika á því að geta orðið kona. Það hefur komið fram í vísindalegum rannsóknum sérfræðinga, þá sérstaklega í Djúphreinsunardáleiðslu, að alla karlmenn langaði til þess að vera kvenkyns á fyrstu 14 mánuðum ævinnar. Eftir það hefst erfitt og strangt úrvinnsluferli þar sem karlmaðurinn tekst á við vonbrigðin að hafa ekki orðið kona. Einn viðmælandi höfundar, 49 ára belgi, hafði þetta að segja: "Fyrir mér var þetta eins og dauðadómur. Ég átti erfitt að mynda félagsleg tengsl og fann fyrir mikilli skömm. Ég reyndi að birgja þetta inni og ég fann hvernig gremjan óx innra með mér. Þegar ég loks fékk hjálp hjá félagsráðgjafa í grunnskóla og komst að því að ég var ekki einn þá fann ég fyrir svo miklum létti. Þá hófst uppgjörið við fortíðina, sem reyndar stendur enn."
2. Unglingsárin. (12-17 ára)
Fyrir karlmanninn þá geta unglingsárin oft verið erfið. Þó svo hann hafi náð ákveðnu jafnvægi í sambandi við áfallið úr barnæsku þá eru önnur tilfinningaleg vandamál sem taka við. Það sem við gætum kannski beint sjónum okkar að er mjólkurkirtlaöfund. Aftur kemur það upp að karlmanninum finnst hann svikinn. Hann langar til þess að vera sá sem fæðir ungviði með geirvörtum sínum. Það er á þessu tímabili sem karlmaðurinn ákveður að láta sér vaxa skegg. Honum vex það reyndar ekki náttúrulega og því þarf hann oft að gangast undir langa og erfiða sterameðferð til þess að ná fram skeggvexti. Þar kemur útskýringin á mismunandi rakvélum fyrir konur og karla. Rakvélar karla eru yfirleitt með mjórri rönd fyrir ofan blöðin sem inniheldur sterakrem sem er til þess að halda skeggvextinum við. Það er ekki vitað til þess að þessi aðferð lækni mjólkurkirtlaöfund en hún dregur þó verulega úr henni. Mjólkurkirtlaöfund útskýrir líka óstjórnlega tilhneigingu karlmannsins til þess að stara á brjóst kvenmanna. Það er ekkert kynferðislegt við þetta gláp, þetta er viðurkenndur sjúkdómur og því ættu kvenmenn að leitast við að leyfa þeim að stara örlítið og jafnvel fá aðeins að þreifa á brjóstunum til þess að karlmaðurinn komist nær lækningu.
3. Tveir verða eitt.
Karlmaðurinn lítur á bæði sambönd og hjónaband sem heilagan hlut. Hann lifir fyrir það að komast í það og halda því við. Án kærustu eða eiginkonu þá er karlmaðurinn ekkert. 24 ára tyrkneskur karlmaður segir: "Ég sef ekki á næturnar. Á morgnanna fer ég í sturtu og reyni mitt besta til þess að þrífa mig en mér finnst ég bara skítugri á eftir. Á götu finn ég augu annara á mér, eins og þau viti að ég eigi ekki kærustu. Og af hverju ekki? Það eina sem mig langar í er jafningi sem get hugsað um og elskað. "
Þeir karlmenn sem finna sér jafningja, þó svo karlmaðurinn líti sannanlega ekki á kvenmann sem jafningja, hún er svo miklu, miklu meira fyrir honum, nota oft tækifærið og lifa loksins lífinu. Það gerir karlmaðurinn þó "í gegnum konuna" og safnar þá oft í búið hlutum eins og sparistelli, blómavösum og kertastjökum. Þetta eru þeir hlutir sem veita honum hvað mesta gleði. Af hverju karlmaðurinn lifir þessa drauma "í gegnum konuna" en fer ekki sjálfur út og kaupir þá er enn óráðin gáta. Heyrum hvað 35 ára bandaríkjamaður hafði um málið að segja: "Ég veit ekki. Þetta var bara alltaf ákveðin skömm sem fylgdi þessu. Ákveðið tabú. Ég verð þó að viðurkenna að flestir vinirnir voru að stelast til þess að kaupa sér kannski einn blómavasa eða súpuskál í sparistellið á unglingsárunum. Þetta voru samt hlutir sem maður var ekki að sýna fjölskyldunni eða vinunum, geymdi falið undir rúmi og tók ekki fram nema öll fjölskyldan væri farin að sofa og skoðaði þá undir sænginni. En sælan í hjartanu sem fylgdi því að höndla gripinn og skoða er ólýsanleg."
4. Vinirnir.
Þó karlmaðurinn hangi löngum stundum með vinum sínum þá eiga þeir samt aldrei sama stað í hjarta hans og kvenmaður. Við skulum hafa eitt á kristaltæru, fyrir karlmanni þá er konan allt! Bara sem dæmi þá lagði ég fyrir þá spurninguna "Hver skapaði himin og jörð?" Yfir 93% svarenda sögðu það hafa verið konu. Því einungis kona gæti skapað eitthvað jafn stórfenglegt. Fyrir karlmanni er kona eitthvað sem ber að virða, óttast og tilbiðja. Vinirnir eru einungis uppfyllingarefni í líf karlmannsins og yfirleitt finnur hann sér þá einungis vegna þess að hann telur sig ekki verðan þess að vera í návígi við konuna í lífi hans. Ef hann fengi að ráða myndi hann vera með henni 24 tíma á dag, 7 daga vikunnar, allan ársins hring til dauðadags. Þess vegna skaltu aldrei hræðast það að biðja, nei, segja honum að vera heima með þér í stað þess að fara út með vinunum. Hann verður þér einungis þakklátur.
5. Hvað hræðir karlmann?
Allt. Sérstaklega allar þær tilfinningar sem hann finnur fyrir innra með sér. Þetta er ólgusjór sem hann á erfitt að sigla um.
6. Í hjónaherberginu.
Ég ætla líka að tala um óþægilegu hlutina. Mér er ekkert heilagt! Margar konur hafa talað við mig og þá sérstaklega til þess að kvarta yfir karlmönnum og kynlífi. Hér, stelpur, koma bæði inn líkamlegir og andlegir þættir. Það kom fram við rannsókn í Þýskalandi fyrir mörgum árum síðan að kynlíf er BÆÐI andleg og líkamleg kvöl fyrir karlmenn. Andlegi parturinn lýsir sér þannig að karlmaðurinn vill bara ekki sjá kvenmann nakinn. Honum finnst kvenmaðurinn vera að niðurlægja sig með því að sýna nakinn líkama sinn jafn óverðugu dýri og karlmaðurinn er. Hann á ekki skilið að sjá nakinn kvenmannslíkama og hann sér þá líka, og ýfir upp gömul sár úr barnæsku, allt það sem hann vildi verða. Að auki þá kvelur kynlíf karlmanninn líkamlega. Einn viðmælandi lýsti því svo að það væri líkt og tugum hnífa væri rekið í gegnum mig á sama tíma og annar lýsti brunatilfinningu sem náði frá hvirfli til táa. Karlmaðurinn sér kynlífið einungis sem nokkurs konar hreinsunareld sem hann verður að ganga í gegnum til þess að komast að sínu himnaríki, barneignum.
Ég vona það þetta nái að útskýra aðeins fyrir ykkur karlmenn. Ef ekki þá verðið þið bara að bíða eftir bókinni sem ætti að vera fáanleg eftir nokkrar vikur.
* Undantekningarnar á þessu eru þrjár. Ef þinn kærasti, eiginmaður eða lífsförunautur fellur undir eitt af þessu þremur: Norðmaður, metrósexjúal eða Arnar Gautur, þá geta hvorki ég né bókin hjálpað þér.