July 4, 2006

Mér leiðist...

.... svo ég fann frábæra leið til þess að láta mér ekki leiðast. Hún hefur fengið nafnið "Kraninn" og framkvæmist svona: Byrjaðu á því að halla þér fram og safna í góðan hráka í munninum. Því næst læturðu hann smjúga í gegnum varirnar líkt og dropi sem hangir á bláþræði úr krana. Þegar hann svo losnar og tekur að falla til jarðar reynir þú að grípa hann aftur með höfuðið á hlið líkt og þú værir að drekka úr krana. Passaðu þig að leggja ekki of geyst af stað því þá klessirðu hrákanum einungis á kinnina á þér og það er leiðinlegt að þurfa að hreinsa hráka framan úr sér.

Góða skemmtun!

No comments:

Post a Comment