January 28, 2003

Þar sem hatrið á lirfunum er svo mikið sendi ég póst til þeirra og bað um svör um þessa blessuðu alþjóðanefnd. Fékk svar frá póstkerfi Háskólans að pósthólf röskvulirfa sé stútfullt. Póstkerfið ætlar samt að reyna áfram í 5daga að koma þessu til þeirra. Þess væri nú óskandi að krakkarnir litu nú á póstinn sinn og svöruðu tobbaliciousi. Bara ef þau hafa tíma sko, örugglega voða upptekin í skóla, en spyrjum að leikslokum. Nú er bara að bíða eftir því að Vökulirfur sendi frá sér snepil svo hægt sé að senda þeim smá hatemail.

No comments:

Post a Comment