January 4, 2003

Lifandi skelfingar gaman er að versla... fátt veit tobbalicious leiðinlegra en að versla. Að þurfa að nudda öxlum við skítugt fólk í helstu verslunarmiðstöðvum Reykjavíkur hryllir mig. Maður sér lýsnar skríða í hárinu á þeim og hor sem læðist út úr nefinu. Þetta er sama fólk og maður sér á Laugaveginum eftir kl. 1 um nótt á virkum dögum, ástæða þess að það er eina skiptið sem bílinn er læstur hjá manni. They fucking scare ya!!! Það er örugglega þetta fólk sem kaupir 100.000kr flugmiða handa kærustum sínum á vísa-rað til þess að “halda upp á þriggja daga ammælið okkar!!!!!”. Segir síðan vinum sínum sem slúðra því áfram til fleiri vina en þegar upp kemst þora þeir ekki að standa á bak við það og hóta saklausum stúlkum út í bæ ef þær draga ekki allt til baka. Því ef að þær lýsa ekki yfir hneykslun sinni þá er ekkert að því að gefa glænýrri kærustu sinni ránFOKKINGdýra gjöf, hvað þá að taka við henni.

No comments:

Post a Comment