January 14, 2003

Þetta er allt að gerast hérna maður. Kominn inn á háskólanetið en get enn ekki komist inn á seraldarvefinn. Klámið verður víst að bíða. Tek því nú samt pollrólega enda er ég ekki þekktur fyrir það að vera öskufljótur. Stefni að því að hitta skítuga útlendinginn minn í kvöld. Bara að ég gæti komið mér í það að læra, þá væri lífið auðveldara. Alla vegna þá er ég lífi, þrátt fyrir sprungið dekk á bíl viðbjóðsins sem síðan reyndist ekk sprungið heldur hafði loftið einungis gert heiðarlega tilraun til þess að losna frá þessu viðbjóðslega farartæki. Ég óska því góðs gengis í hverju því sem það tekur sér fyrir hendur nú. Kannski bara aðstoðarloft verðandi borgarstjóra.

Drykkjan á Friday var hin fínasta og slúttaði tobbalicious kvöldinu með þvi að henda tannkremstúbunni í klósstið. Stúlkan var ekki kát.

Þá er bara að bíða eftir næstu drykkju.

No comments:

Post a Comment