January 23, 2003

Eftir langar og strangar leynilegar viðræður milli tobbaliciousar, ASÍ, Ólympíunefndarinnar og Skáksambands Íslands verður hrint í framkvæmd "Judith Polgar-áætluninni". Með henni verður barist gegn óréttlæti í heiminum, komið á frið í Mið-Austurlöndum, kvótanum komið aftur í hendur almennings á Vestfjörðum og Írak gert að sjálfstæðu ríki innan Bandaríkjanna. Þjálfaður verður her stórbrjósta skákkvenna sem mun sameina þjóðir heims í þessum baráttumálum með skákina eina að vopni. "Riddarar réttlætis" kallast herdeildin og mun heimsækja þig áður en langt líður. Þér er ætlað að falla á kné og meðtaka þennan boðskap. Alþjóðavæðing í nafni skákar.

No comments:

Post a Comment