January 29, 2003

Well, well, well. Haldið ekki að strákarnir séu ekki búnir að kippa þessu í lag. Nú get ég aftur sagt gamansögur af hinu háfleyga lífi sem ég lifi. Úttekt á deginum í dag er einhvern veginn svona. Vaknaði. Lærði. Bloggaði. Ef ég er að fara of hratt fyrir ykkur þá látið mig vita. Það virðist sem Jovicious hafi skilið eftir smá veikindi þegar hún kom hér í heimsókn og kláraði hrökkbrauðs- og bollasúpubirgðir Eggertsgötuhjónaleysanna. tobbalicious liggur hér um bil fyrir dauðanum en harkar þetta auðvitað af sér sem góðri hetju á tölvunarfræðibraut sæmir. Já það er ótrúlegt hvað maður leggur á sig til þess að mennta sig(HA HA HA HA HA). Heimsókn til Óla í kvöld til þess að horfa á rauðklædda vinna næstum því rauðklædda ef ekki væri fyrir smá hvítt á ermunum. Vona að Óli verði ekki nakinn þegar ég mæti.

No comments:

Post a Comment