April 7, 2003

Mánudagur og ég er ekkert sérsaklega pirraður.. sem gerir mig náttúrulega assgoti pirraðan. Mánudagur missir einhvern veginn marks ef hann nær ekki að æsa mann upp aðeins. Völundur kom svo og gekk frá deginum með því að bjóða mér í bíó. Þessa dags verður sem sagt minnst sem "mánudagurinn sem var í rauninni ekki mánudagur." Stórskrítið og er ekkert svo viss um það að ég eigi eftir að ná mér.

Rosalega finnst mér gott að allir stjórnmálaflokkar eru að bjóða skattalækkun ef þeir verða kosnir til valda. Miðað við alla þessa skattalækkun lítur út fyir það að þeir borgi mér fyrir það að búa í landinu. Persónuafslátturinn verður persónulaunin og til að toppa það fær maður síðan persónulaunin greidd aftur frá skattinum þegar maður hefur skilað skattaskýrslu.. Brilljant. Get ekki beðið eftir því að fá allan þennan pening. Best að fara að eyða núna strax. Maður fær þá kannski eitthvað svona "misgjörðauppbót" frá Samfylkingunni fyrir ofstæki Sjálfstæðisflokks eða þá "frjálslyndis frítekjur" frá Sjálfstæðisflokknum fyrir það að hafa staðið með þeim. Ég er að segja ykkur það að næsta ár verður greinilega það besta frá upphafi, allir vaðandi í seðlum.

No comments:

Post a Comment