January 19, 2004

Halló heimur! You gay bastard!

Byrjaði ég að blogga af því mér leiddist eða leiddist mér af því ég byrjaði að blogga? Er þetta ekki einmitt spurningin? Hamlet, ég vildi biðja þig vinsamlegast um að losa þig við hauskúpuna, taka upp thinkpadinn og spyrja Google ráða. Að vera eða ekki vera? Þar liggur efinn. I?m feeling lucky! Enter. Kemur svo bara í ljós hvað netið gefur þér ekki satt? Alltaf hef ég nóg af spurningum en engin svör.

Á laugardagsmorgun fékk ég að gera æðislegan hlut. Óð snjóinn upp í herðar, bjó til engla í hann og fór í snjókast. Hvers annars er hægt að óska sér en að fá að vera barn í smástund. Þangað til hendurnar æpa af kulda og maður finnur ekki fyrir tánum lengur. He he he he. Verð að segja það að ég hef ekki skemmt mér jafnvel í langan, langan, langan tíma. Vildi að ég væri að gera akkúrat sama hlut núna. Nema af því ég er orðinn háður því að hanga á netinu svo tímunum skiptir þá nenni ég því ekki. Þarf líka að þvo þvott og svoleiðis leiðindi einhver.

Vantar reiðina í mig sem ég hafði þegar ég var yngri. Nú nenni ég bara ekki lengur að pirra mig út í þjóðfélagið og vantmátt minn gagnvart því. Nú pirra ég mig bara yfir því að nenna ekki neinu. Pirra mig yfir því að nenna ekki að pirra mig. Sem auðvitað gerir mig enn pirraðari.

Jæja, nóg af pirri í bili. Skemmtið ykkur. Ég nenni því ekki.

No comments:

Post a Comment