January 7, 2004

Kræst, maður

Dottinn í þunglyndi aftur maður. Andskotinn hafi það hvað ég þoli það ekki. Reyndar búinn að velja mér námskeið til að læra þetta árið. 25 einingar svo þetta ár er nokkuð þétt skipað lærdómi. Á reyndar eftir að bera það undir skjólstæðinginn til að samþykkja. Vonum að hann hafi ekki önnur plön handa mér. Spurning um að hætta öllu saurlífi, henda sér í kirkju á sunnudögum og gerast fyrirmyndarborgari. Eða ekki.

Ætlaði að halda áfram sögunni af ferðalaginu mikla en einhver leti í mér svo ég nenni því ekki. Kannski á morgun. Annars er ég enn að bíða eftir einhverjum svörum frá Lín og einkunnum frá hí. Leiðinlegt að bíða eftir einhverju sem er ekkert spennandi. Fökk. Hættur í dag.

No comments:

Post a Comment