December 1, 2003

Raðbundið mengi grafískra kynlífslýsinga og smokkakaupa

Glæhisifreakinglegt! Ritgerð komin í hendur einhvers annars. Þarf ekki að hafa áhyggjur af henni lengur. Kostaði mig reyndar það að þurfa að vaka alla nóttina en maður hefur svo sem gert það áður. Held ég. Man ekki neitt lengur. Er að spá í það hvernig ég geti verðlaunað mínu loðna rassgati fyrir það að hafa verið svona duglegur en það eina sem mér dettur í hug er að detta í það. Kannski soldið snemmt að fara að detta í það á hádegi á mánudegi.... eða hvað?

Kemur allt saman í ljós þegar líður á daginn. Er það heppinn að skjólstæðingurinn, guð blessi hann og fjölskyldu hans, er loksins farinn í ferðalag umhverfis landið svo ég fæ örlítið tækifæri til þess að anda og reyna ekki að finna afsakanir til þess að komast hjá því að hitta hann. Ekki það að mér finnist ekki allt í lagi að hitta drenginn, kannski óþarfi að fá frá honum 10 sms á dag um það hvort við ættum ekki að hittast í bolla. Rólegur félagi, við erum ungir og getum alltaf drukkið kaffi síðar. 5 sekúndum síðar kæmi sendiferðabíll og straujaði mig niður. Ungur my gay ass.

Annars er skítalinn minn svolítið búinn að fara í taugarnar á mér síðustu daga því hann gerir sér ekki grein fyrir því að sumir okkar sem eru skráðir í Hí þurfa að læra til þess að geta feikað það að vera námsmenn. Hann hefur ekki mætt í skólann síðan í september. Fyrir honum er óskiljanlegt að ég "vilji" hanga heima í eigin geðveiki og læra. Svo er annað mál, maður. Þannig vill að á laugardagsmorgun kom til landsins kærasta/vinkona/hjásvæfa skítalans. Hún er voða sæt og hef ég þurft að sitja undir grafískum lýsingum frá skítalanum á því hvernig stúlkunni skuli heilsað af skítalasið. Eða eins og við skítalarnir köllum það: "BAMM!". Svona BAMM!. Hinsegin BAMM!. BAMM! í allar áttir. Get svo svarið það að ég held að ástæðan fyrir því að ég losna ekki við þennan hósta sé fundinn. Lungun vilja burt frá viðbjóðnum. Reykingar valda ekki krabbameini, grafískar lýsingar á ástarmökum skítlendinga gera það.

Það er ekki nóg með það að honum finnist það sjálfsagt mál að veita mér þessar grafísku lýsingar, heldur getur kvikindið ekki keypt sér smokka. Sem þýðir aðeins eitt. Aðstoðarmaðurinn (ég) er spurður á klukkutíma fresti hvort hann geti ekki lánað honum smokka. Þeir sem þekkja mig vita það að ég hef ekki enn verið við kvenmann kenndur og smokkar eru því eitthvað sem ég veit að er til en ég hef í rauninni aldrei séð smokk. Smokkar eru fyrir mér svolítið eins og naktar konur... eitthvað sem bara er til á internetinu. Svo ég reyndi að útskýra fyrir honum að ég hefði séð myndir af smokkum en í vissi í rauninni ekki neitt um það hvort það væri hægt að redda sér svoleiðis einhverju á Íslandi. Hvaða Friðrik Weisspel heldur skítlalinn eiginlega að ég sé??? Veit ekki hvort var sorglegra, ég að útskýra það að hafa aldrei átt ástarmök hér um bil orðinn 27 ára eða hann að finna afsakanir fyrir því hvers vegna hann gæti ómögulega farið í búð eða apótek til þess að versla sér smokka. Miðað við lýsingarnar á því hversu fær hann er í rúminu ætti hann ekki að þurfa að skammast sín, hann gæti jafnvel gaukað nokkrum lýsingum að afgreiðslufólkinu meðan hann verslar þá. Yrði kærkomin hvíld fyrir eyrun á mér sem gerðu heiðarlega tilraun til þess að láta sig falla af hausnum á mér um daginn til þess að þurfa ekki að hlusta á meira.

Þessar kynlífslýsingar, smokkavandræðin og sú staðreynd að skítalinn veifar í tíma og ótíma framan í mig módelmöppunni sinni með speedo-myndinni af sjálfum sér og heimtar að ég sýni íslenskum stúlkum sem honum líst vel á. "Sýndu þeim þetta og segðu þeim að ég bíði eftir þeim heima." He he he he he he he he he he! Yeah right. Alvarlega á spá í það að drepa hann. Ekkert persónulegt sko. Bara svona............ hugleiðing.

Svo gef ég ykkur þetta til þess að hugleiða. Ætli þau sjái eftir þessari forsíðu??????

No comments:

Post a Comment