November 13, 2003

Meira blóð!

Orðinn ástfanginn af Tarantino núna. Sem þýðir væntanlega að Monica verður að hverfa af desktopinu. Eða ekki. Snilld sem kILL bILL er maður. Grét, hló og skemmti mér æðislega. Svipað og þegar ég stunda kynlíf en það er önnur og lengri saga. Kom mér loksins í það að sjá kill bill umfang eitt, þurfti reyndar að snara nokkrum línum af japönsku yfir á ítölsku meðan á myndinn stóð en það pirraði engan nema alla sem þurftu að sitja nálægt mér. Sem mér finnst allt í lagi því að þau voru ekki ég, stundum er svo æðislegt að vera ekki ekki maður sjálfur.

Tvöföld neitun. Takið þetta, troðið í pípuna ykkar og reykið það íslenskufræðingar.
Úúúúúú!! tobbalicious er að reyna að stofna til illinda, brjálaður strákur þessi tobbalicious. úúúúúúuu!

Brjálaður dagur sem gekk út á lærdóm, spjall við skorarformann, vinnu, bíóferð og svo éta þegar klukkan er eitt um nótt því það einhvern veginn bara gleymdist. Lærði og fór í tíma, undur og stórmerki. Fór og hitti formann tölv. sagði mér að það væri ekki útilokað að ég fengi tölv. metið en samt þyrfti að leggja það undir æðsta ráð verkfræðideildar, einhvern gaur sem kallar sig Kalífas stjórnar því ráði og hann verður að leggja blessun sína yfir ósköpin. Vonum bara að loforð mitt um "kynlífsgreiðar fyrir einingar" gangi eftir. Svo reddaði ég því þannig að börn landsins geta verið viss um það að leikföngin um þessi jól eru komin í hús. Leikfangaverslunin á Laugavegi er troðfull. Farið nú og kaupið leikfang þar í tilefni dagsins. Kill Bill. Kill Bill. Kill Bill. Bjór. Svo henti ég pasta í pott og át. Seint. Því ég kom heim seint og 10-11 var lokuð. Svo morgunmatur er í svolítilli biðstöðu þangað til þeir opna aftur.

Þangað til á morgun. Kill Bill.

No comments:

Post a Comment